Grænihryggur - FULLBÓKAÐ

Dags:

lau. 12. júl. 2025

Brottför:

Brottför frá Mjódd kl 07:00

Þessi viðburður er liðinn.

FULLBÓKAÐ

Grænihryggur á einum degi

Í göngunni að náttúruperlunni Grænahrygg nýtur litadýrð Fjallabaks sín einkar vel. Lagt er af stað frá Kýlingavatni, sem er ekki ýkja langt frá Landmannalaugum, og haldið um Halldórsgil og Sveinsgil. Leiðin er nokkuð strembin og ganga þarf upp og niður gil og vaða en það er allt vel þess virði þegar komið er að hinum blágræna Grænahrygg. Sama leið verður farin til baka. Nauðsynlegt er að vera með góða vaðskó.

Gera má ráð fyrir 7-8 tímum í akstur.

Gönguleið 16-18 km. Hækkun 7-800 metrar. Göngutími 7-9 tímar. 

Innifalið er rúta frá Reykjavík og fararstjórn.

Búnaðarlisti  Að auki þarf góða vaðskó.

Verð 30.000 kr.
Félagsverð 23.000 kr.

Nr.

2507D01
  • Suðurland