60+ ferðir

Síun
  • Dags:

    mán. 17. ágú. 2026

    Brottför:

    Dagsferð í Þórsmörk 60+ FULLBÓKAÐ

    ATH! Fullbókað í ferðina. Vinsamlegast sendið tölvupóst á utivist@utivist.is  eða hringið í 562 1000 til að fara á biðlista.

    Hvenær gafst þér síðast tækifæri til að njóta fegurðar Þórsmerkur og kyrrðarinnar sem þar ríkir?

    Þessi ferð er hugsuð fyrir 60+ sem hafa áhuga á að skoða Þórsmerkursvæðið í allri sinni dýrð.

    Í ferðinni er farið um helstu svæði Þórsmerkur og fengin innsýn í fjölbreytta náttúru hennar. Við tökum rútu úr Reykjavík og höldum inn í Þórsmörk og Goðaland með smá stoppi á leiðinni. Í Básum þar sem hjarta Útivistar slær, tekur staðarhaldari á móti okkur og við förum í skoðunarferð og þau sem vilja taka Básahringinn sem er stuttur en afar skemmtilegur göngutúr hafa færi á því. Svo er snæddur hádegisverður í litla veitingaskálanum okkar, Básabita. Svo liggur leiðin áfram á rútunni yfir á svæði FÍ í Langadal þar sem stoppað verður stutt. Þeir sem vilja, ganga yfir í Húsadal en aðrir taka rútuna áfram þangað. Í Húsadal bíður kaffi og kaka áður en haldið er til baka til Reykjavíkur.

    Þessi ferð er fyrir alla, hvort sem þau hafa hug á stuttum göngum eða vilja nota rútuna meira. Við njótum fallegs umhverfis, góðs félagsskapar og góðs matar!

    Markmiðið er einfalt: að njóta samverunnar og eiga ánægjulega stund í þessari einstöku náttúru.

    Fararstjórar eru Gunnar Hólm Hjálmarsson og Jóhanna Benediktsdóttir

    Innifalið er rúta til og frá Reykjavík
    Leiðsögn
    Hádegismatur í Básum
    Kaffi og kaka í Húsadal

    • Verð:

      31.900 kr.
    • Félagsverð:

      24.900 kr.
    • Nr.

      2608D05
    • ICS
  • Dags:

    mán. 24. ágú. 2026

    Brottför:

    Dagsferð í Þórsmörk 60+

    Hvenær gafst þér síðast tækifæri til að njóta fegurðar Þórsmerkur og kyrrðarinnar sem þar ríkir?

    Þessi ferð er hugsuð fyrir 60+ sem hafa áhuga á að skoða Þórsmerkursvæðið í allri sinni dýrð.

    Í ferðinni er farið um helstu svæði Þórsmerkur og fengin innsýn í fjölbreytta náttúru hennar. Við tökum rútu úr Reykjavík og höldum inn í Þórsmörk og Goðaland með smá stoppi á leiðinni. Í Básum þar sem hjarta Útivistar slær, tekur staðarhaldari á móti okkur og við förum í skoðunarferð og þau sem vilja taka Básahringinn sem er stuttur en afar skemmtilegur göngutúr hafa færi á því. Svo er snæddur hádegisverður í litla veitingaskálanum okkar, Básabita. Svo liggur leiðin áfram á rútunni yfir á svæði FÍ í Langadal þar sem stoppað verður stutt. Þeir sem vilja, ganga yfir í Húsadal en aðrir taka rútuna áfram þangað. Í Húsadal bíður kaffi og kaka áður en haldið er til baka til Reykjavíkur.

    Þessi ferð er fyrir alla, hvort sem þau hafa hug á stuttum göngum eða vilja nota rútuna meira. Við njótum fallegs umhverfis, góðs félagsskapar og góðs matar!

    Markmiðið er einfalt: að njóta samverunnar og eiga ánægjulega stund í þessari einstöku náttúru.

    Fararstjórar eru Gunnar Hólm Hjálmarsson

    Innifalið er rúta til og frá Reykjavík
    Leiðsögn
    Hádegismatur í Básum
    Kaffi og kaka í Húsadal

    • Verð:

      31.900 kr.
    • Félagsverð:

      24.900 kr.
    • Nr.

      2608D06
    • ICS


1 / 9

Strútur á Mælifellssandi