Strútsstígur

Laust í þessar ferðir sumarið 2024:

Strútsstígur 24.-27. júlí

Strútsstígur 7.-10. ágúst

Um sunnanvert Fjallabak liggur falleg gönguleið frá Hólaskjóli í austri og vestur í Hvanngil. Margt kætir hug og anda á þessari leið. Fagrir fossar verða á vegi okkar og fögur fjallasýn. Farið er um dalverpi í Hólmsárbotnum þar sem Torfajökul ber við himin og hin rómaða Strútslaug bíður göngumanna. Óhætt er að segja að umhverfi skálans við Strút sé draumaland göngumannsins með ótal möguleikum á skemmtilegum gönguleiðum. Því er dvalið tvær nætur í Strút til að kynnast betur þessu skemmtilega svæði. Á lokadegi göngunnar er haldið áfram frá Strút vestur yfir Veðurháls og að Hvanngili þar sem rúta sækir hópinn.


Trúss   
Ferðirnar eru trússferðir. Farangur er fluttur á milli náttstaða, svo að þátttakendur þurfa aðeins að bera bakpoka með nesti og hlífðarfötum. Þótt ferðirnar séu trússferðir er gott að hafa í huga að trússbíllinn er ekki mjög stór. Því skal takmarka umfang þess farangurs sem tekinn er með. Ágætt er að taka ekki meira með en í hefðbundinni ferð þar sem gengið er með allan farangur. Ganga verður þannig frá öllum farangri að hann blotni ekki þó rigni á hann.

Dagur 1
Brottför með rútu frá Mjódd (sunnan við bíóið og vestan við Breiðholtskirkju) kl. 08:00. Ekið í Hólaskjól þar sem gangan hefst. Stutt og þægileg ganga að Álftavötnum þar sem gist er í gömlum gangnamannaskála sem Útivist hefur endurbyggt með smekklegum hætti. Vegalengd 6-7 km, göngutími 2 klst. 

Skálinn við Álftavötn

Dagur 2
Gengið með Syðri-Ófæru og inn með hlíðum Svartahnúksfjalla. Áfram liggur leiðin um Hólmsárbotna og að Strútslaug þar sem göngumönnum býðst að fara í bað. Frá lauginni verður haldið að Strútsskála þar sem gist verður næstu tvær nætur. Vegalengd um 20-24 km, göngutími um 7-8 klst. 

Skálinn við Strút  

Dagur 3
Dagurinn nýttur til spennandi gönguferða í nágrenni Strúts. Leiðarval ræðst af veðri og aðstæðum, en umhverfið býður upp á fjölbreytta möguleika á lengri og styttri gönguleiðum, t.d. göngu á Torfajökul, eftir hinu sérstaka Krókagili, göngu á Strút eða eftir Strútsgili. 

Dagur 4
Farið vestur yfir Veðurháls með Mýrdalsjökul á vinstri hönd. Gengið eftir Mælifellssandi hjá Slysaöldu og þaðan yfir Kaldaklofskvísl að Hvanngili þar sem rúta sækir hópinn. Vegalengd um 18 km, göngutími um 7 klst.

Undirbúningsfundur

Haldinn er undirbúningsfundur fyrir hverja ferð þar sem fararstjóri kynnir leiðina og veitir ráð um útbúnað o.fl. Undirbúningsfundir eru yfirleitt haldnir viku fyrir brottför.