Bóka gistingu

Gagnlegar upplýsingar
GPS-hnit: N 64°05,176 / V 18°24,946
Gistipláss: Í skálanum eru 18 gistipláss
Tjaldstæði: Til staðar
Salerni og vatn: Salernishús með rennandi vatni yfir hásumarið. Ekki er klósettpappír.
Vaskur: Til tannburstunar fyrir aftan salernishús
Eldunaraðstaða: Gashellur og eldunaráhöld
Upphitun: Gasofn
Gaskútar: Í kjallara skála eða í klósetthúsi
Áhugaverðir staðir í nágrenni:
Sveinstindur, Langisjór, Hringleið um Langasjó, Fögrufjöll
Sveinstindur
Skálinn við Sveinstind er í grunninn gamall gangnamannaskáli sem félagsmenn í Útivist endurbyggðu árið 1999. Byggt var ofan á gömlu vegghleðsluna og haldið byggingarlagi gamla tímans. Endurbyggingin heppnaðist afskaplega vel og skálinn fellur vel inn í umhverfið. Skaftá rennur rétt hjá skálanum og setur mark sitt á landslagið, sem að miklu leyti er þakið iðjagrænum mosa.
Aðkoma:
Bílvegur liggur alveg heim að skála. Frá veginum um Fjallabaksleið nyrðri (F208) er beygt inn á slóðann að Langasjó (F235). Við suðurenda Langasjávar, rétt undir Sveinstindi, er beygt til austurs og ekið eftir slóða sem fylgir rótum fjallsins.
GPS-hnit gatnamótanna: N 64°06,456 / V 018°26,765
Þessum slóða er fylgt að Skaftá og síðan um 1 km til norðurs að skálanum. Fyrri hluta sumars geta verið sandbleytur í slóðanum.
Skálavarsla og greiðslur:
Skálavörður er ekki í skálanum, en skálaverðir í Strútsskála og Hólaskjóli hafa eftirlit með honum. Gistingu í skála þarf að bóka og greiða á bókunarvef Útivistar. Tjaldstæði er hægt að greiða hjá skálaverði í Strút, á skrifstofu Útivistar eða í þar til gerðan bauk sem er í skálanum.