Bóka gistingu

Gagnlegar upplýsingar
GPS-hnit N63°50,330 / V 18°58,477
Staðsetning skála Útivistar á korti.
• Gistipláss í skála eru 26 talsins
• Tjaldsvæði við skála
• Salerni yfir hásumarið
• Sturta yfir hásumarið
• Gashellur til eldunar
• Eldunaráhöld og borðbúnaður
• Kolagrill
Áhugaverðir staðir í nágrenni
Strútur, Strútslaug, Mælifell, Torfajökulssvæðið, Krókagil
Skálinn við Strút var byggður haustið 2002. Skálinn er ákjósanlegur áningarstaður á milli Álftavatna í austri og Hvanngils eða Emstra í vestri. Hægt er að velja um fjölda áhugaverðra gönguleiða í nágrenni skálans. Göngukort er til sölu á skrifstofu Útivistar eða hjá skálaverði, sem er á staðnum frá byrjun júlí og fram í miðjan ágúst. Einnig getur Útivist boðið hópum upp á leiðsögn staðkunnugra fararstjóra í lengri eða skemmri ferðum út frá skálanum.
Aðkoma
Bílvegur liggur að skálanum frá Mælifellssandi. Sé komið Fjallabaksleið syðri (F210) að vestan er beygt til norðurs á vegamótum þar sem er GPS-hnit N63°48.023 / V18°57.351.
Einnig er hægt að aka Öldufellsleið (F232) að austan og beygt er til norðurs á sömu vegamótum.