Fjallabrall - án helgarferðar

Dags:

lau. 24. jan. 2026 - lau. 30. maí 2026

Brottför:

Fjallabrall Útivistar – án helgarferðar

Fjallabrall hefur fest sig í sessi sem gríðarlega vinsæll gönguhópur innan Útivistar síðan hann fór í gang á haustdögum 2022.

Hópurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa einhverja reynslu af útivist og fjallgöngum. Erfiðleikastig ferða er 1-2 skór. Miðað er við að dagsferðir séu ekki meira en um 15 km og uppsöfnuð hækkun í ferðum ekki meiri en um 600 metrar.*

Á vorönninni mun hópurinn ganga níu sinnum saman en farnar verða fjórar kvöldferðir og fimm dagsferðir. Miðað er við að fólk fari á eigin bílum í ferðir (nema í Síldarmannagötur þar sem farið verður í rútu). Í kvöldgöngunum hittist hópurinn kl. 18 og í dagsgöngunum hittist hópurinn ýmist kl.8 eða kl. 9, í báðum tilvikum er boðið að sameinast í bíla og svo keyrir hópurinn í samfloti að upphafstað göngu.

Í ferðunum er aðal áherslan á að öllum líði vel. Allir eiga að geta notið sín í hópnum og mikið er lagt upp úr því að njóta útiverunnar saman. Þátttakendur fræðast um ýmsa hluti tengda göngum og útivist auk þess sem lagt er upp úr því að deila fróðleik tengdum svæðinu sem ferðast er um.

Innifalið í skráningu er fararstjórn í allar ferðir og rúta í dagsferð á Síldarmannagötur.

Fararstjórar eru Fríða Brá Pálsdóttir, Hanna Guðmundsdóttir og Tryggvi Guðmundsson.

24.janúar

Prestastígur

dagsferð

11. febrúar

Rauðavatn og Paradísardalur

kvöldferð

7. mars

Húsfell og Helgadalur

dagsferð

25. mars

Grótta og sund*

kvöldferð

11. apríl

Litli og Stóri Reyðarbarmur

dagsferð

22. apríl

Reykjaborg

kvöldferð

9. maí

Suðurfjall og Bollafell við Brynjudal

dagsferð

20. maí

Hér og þar á Henglinum II

kvöldferð

30. maí

Síldarmannagötur - opin ferð**

dagsferð

 

* Sundferð í sundlaug  Seltjarnarnes eftir Gróttu gönguna er ekki innifalin og greiðist aukalega af þátttakendum.

**Ferðin er innifalin í verði fyrir þátttakendur en í opnar ferðir geta aðrir en þátttakendur í Fjallabralli skráð sig í gegnum skrifstofu Útivistar. Vinir og vandamenn hópsins hafa nýtt tækifærið og gengið með í þessum ferðum.

Athugið að dagskrá getur tekið breytingum með hliðsjón af veðurspám og aðstæðum að hverju sinni.

Fararstjórar eru Fríða Brá Pálsdóttir, Hanna Guðmundsdóttir og Tryggvi Guðmundsson.

Verð 60.000 kr.
Félagsverð 47.000 kr.

Nr.

2601B01