Raðganga um Kóngsveg - 4. áfangi

Dags:

lau. 18. apr. 2026

Brottför:

Hist við Hádegismóa kl 8:00

Þessi viðburður er liðinn.

Fjórði leggur raðgöngunnar um Kóngsveg byrjar við Gíslhól en þaðan verður farin hefðbundin leið að Hakinu og um Kárastaðastíg niður í Almannagjá. Þessi leið niður í Almannagjá var ekki gerð fær fyrir hesta fyrr en eftir jarðsigið mikla 1789 þegar leiðin með vatnsbakkanum hvarf undir vatn. Með sprengingum var stígurinn breikkaður og gerður vagnfær um aldamótin 1900 þannig að greiðfært var niður í Gjána þegar konungsfylgdin var þar á ferð. Á Þingvöllum fáum við skemmtilega fræðslu um þessa merku heimsókn Friðriks konungs frá Sigurði Helga Pálmasyni, þingmanni og formanni Þingvallarnefndar. Frá Þingvöllum verður farið um Skógarkotsveg hjá Skógarkoti og um Gjábakkaveg og að Gjábakka þar sem gangan endar. Á þessari leið er margt að skoða enda hefur hjarta þjóðarinnar slegið á Þingvöllum í nær 1100 ár.
Vegalengd 18-19 km. Hækkun 200.
Farið er á eigin bílum og hist við Hádegismóa kl 8:00 þaðan sem sameinast verður í bíla að lokastað göngu við Gjábakka. Þar verða einhverjir bílar skyldir eftir og hinir bílarnir ferja mannskapinn að upphafsstað göngu við Gíslhól. Staðsetning við Hádegismóa þar sem við hittumst á laugardagsmorguninn er hér: https://maps.app.goo.gl/RMdpT8LGuoiz2Wd38

 Um raðgönguna um Kóngsveg 2026:
Árið 2026 verða 119 ár liðin frá ferð Friðriks áttunda konungs Danmerkur og Íslands frá Reykjavík til Þingvalla, Geysis og Gullfoss. Að því tilefni stendur Útivist fyrir raðgöngu þessa leið og verður hún farin í átta áföngum frá janúar og fram í september.
Fyrirkomulag ferðanna verður þannig að þátttakendur fara á eigin bílum og hittast við lokastað hverrar göngu. Sameinast er í bíla að upphafsstað þar sem gangan hefst.
Fararstjórar verða Hanna Guðmundsdóttir, Fríða Brá Pálsdóttir og Jóhanna Benediktsdóttir ásamt fleirum.

Verð 9.000 kr.
Félagsverð 5.900 kr.

Nr.

2604D01
  • Suðvesturland