Útivist

Útivist

Beint í leiðarkerfi vefsins.


  • Forsíða
  • Ferðir og dagskrá
    • Dagsferðir
    • Helgarferðir
    • Lengri ferðir
    • Myndakvöld
    • Everesthópur
    • Fjallfarar
    • Jeppaferðir
    • Útivistarlífið
    • Verð og skilmálar
    • Bóka ferð
    • Þrekhópur Útivistar
  • Skálar
    • Álftavötn
    • Básar á Goðalandi
    • Dalakofi
    • Fimmvörðuskáli
    • Skælingar
    • Strútur á Mælifellssandi
    • Sveinstindur
    • Verð og skilmálar
    • Tindfjallasel
  • Fréttir
    • Myndir á heimasíðu Útivistar!
  • Fróðleikur
    • Leiðarlýsingar
      • Fimmvörðuháls - 1 dagur
      • Fimmvörðuháls - 2 dagar
      • Jónsmessuganga
      • Laugavegurinn - 5 dagar
        • Laugavegur - 5 dagar fyrsta nóttin í Landmannal.
      • Laugavegurinn - 5 dagar klassísk ferð
      • Strútsstígur
      • Sveinstindur-Skælingar
      • Strútsstígur-Sveinstindur
      • Dalastígur
      • Gönguferðaleikur - nokkrar dagsferðir
      • Langleiðin 2021
    • Gátlistar
      • Dagsferð
      • Bakpokaferð
      • Trússferð
      • Jeppaferð
    • Matur og næring
    • Skýringar á táknum
    • Gagnlegir tenglar
  • Myndir
    • Nýjustu myndirnar
    • Ferðir 2018
    • Ferðir 2017
    • Ferðir 2016
    • Ferðir 2015
    • Ferðir 2014
    • Ferðir 2013
    • Ferðir 2012
    • Ferðir 2011
    • Ferðir 2010
    • Myndir frá ýmsum stöðum
      • Fimmvörðuháls
      • Snæfellsnes
    • Ferðir 2019
  • Um Útivist
    • Skrifstofa
    • Félagsaðild
      • Gerast félagi
      • Afslættir til félagsmanna
    • Póstlisti
    • Stjórn
    • Kjarni
    • Nefndir
      • Skipulag ferða
        • Dagsferðanefnd
        • Langferðanefnd
        • Jeppanefnd
      • Skálanefndir
        • Básanefnd
        • Dalakofanefnd
        • Fimmvörðuskálanefnd
        • Strútsskálanefnd
        • Skálar að Sveinstindi, Skælingum og Álftavötnum
        • Tindfjallaselsnefnd
      • Félagslíf
        • Kaffinefnd
        • Myndanefnd
      • Aðrar nefndir
        • Fræðslu- og skemmtinefnd
        • Laganefnd
        • Ritnefnd vefsíðu
        • Skoðunarmenn reikninga
    • Lög Útivistar
    • Saga Útivistar
    • Gönguskór
    • Verð og skilmálar
    • Stefnumótun Útivistar
    • Félagslíf
    • Umhverfisstefna Útivistar
    • Náttúruverndarstefna Útivistar
    • Fundargerð aðalfundar 2016
    • Ársrit Útivistar
    • Fararstjórar
  • Fararstjórar
  • English
    • Fimmvörðuháls
    • Laugavegurinn
    • Strútsstígur
    • Sveinstindur-Skælingar
    • About Útivist
    • Other hiking tours
    • Álftavötn hut
    • Básar hut
    • Dalakofinn hut
    • Fimmvörðuháls hut
    • Skælingar hut
    • Strútur hut
    • Sveinstindur hut
    • The Solstice Hike over Fimmvörðuháls
    • Useful links

Flýtileiðir

  • Gerast félagi
  • Póstlisti
  • Hafðu samband
  • English

Leita

Tegundir ferða
  • Dags-
    ferðir

    Dagsferðir

    Ferðafélagið Útivist stendur fyrir fjölbreyttum ferðum árið um kring. Tilgangur félagsins er að stuðla að útivist fólks í hollu og óspilltu umhverfi.

    Útivist býður upp á dagsferðir, helgarferðir, sumarleyfisferðir og kvöldfgöngur með Útivistargírnum. Einnig býður jeppadeildin upp á margar mismunandi ferðir jafnt sumar sem vetur. Allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi allt frá léttum gönguferðum upp í erfiðar fjallaferðir að sumri og vetri fyrir vel þjálfað fólk.

    Næstu ferðir

    6. mars 2021

    Húsfell og Búrfellsgjá

    13. mars 2021

    Reykjavegur 2: Eldvörp – Leirdalur

    20. mars 2021

    Afmælisganga á Keili

    Fleiri ferðir
  • Helgar-
    ferðir

    Helgarferðir

    Helgarferðir eru eins og nafnið gefur til kynna ferðir sem taka heila helgi. Göngur yfir Fimmvörðuháls eru klassískar helgarferðir en einnig hafa margar aðrar ferðir hjá Útivist fest sig svo rækilega í sessi að þær eru fastur liður á ferðaáætluninni. 

    Næstu ferðir

    18. mars 2021 - 21. mars 2021

    Bjarnarfjörður – skíðaferð

    18. júní 2021 - 20. júní 2021

    Fimmvörðuháls

    25. júní 2021 - 27. júní 2021

    Jónsmessuganga á Fimmvörðuháls (skáli kl. 17)

    Fleiri ferðir
  • Lengri ferðir

    Lengri ferðir

    Lengri ferðir eru göngur þar sem gengið er í þrjá daga eða meira. Í þessari dagskrá má finna bæði þekktar gönguleiðir eins og Strútsstíg og Sveinstind-Skælinga, en einnig eru þarna nokkrar spennandi nýjungar. 

    Næstu ferðir

    29. júní 2021 - 3. júlí 2021

    Laugavegurinn

    1. júlí 2021 - 4. júlí 2021

    Sveinstindur – Skælingar

    1. júlí 2021 - 4. júlí 2021

    Strútsstígur

    Fleiri ferðir
  • Mynda-
    kvöld

    Myndakvöld

    Kaffi- og myndanefnd voru settar á stofn fljótlega eftir stofnun Útivistar. Markmið þeirra er að halda myndakvöld þar sem félagsmenn koma saman til að skoða myndir og hlýða á ferðasögur frá ferðum sem Útivist hefur staðið fyrir. Auk þess eru kynntar ferðir á nýjum slóðum. Oft eru fengnir utanaðkomandi aðilar til að kynna áhugaverð svæði.

    Glæsilegar kaffiveitingar eru eitt aðalsmerki myndakvöldanna. Félagslegi þátturinn er stór. Útivistarfélagar hittast, rifja upp góðar stundir og gæða sér á kræsingum af kökuhlaðborðinu.

    Myndakvöld eru haldin fimm sinnum yfir vetrarmánuðina og njóta mikilla vinsælda. Allur ágóði af myndakvöldunum er nýttur til að efla félagið. Lengst af var hann settur í uppbyggingu aðstöðu félagsins í Básum á Goðalandi. Nú síðustu ár hefur ágóðanum verið varið í kaup og uppsetningu útsýnisskífu á Réttarfelli og glæsileg fræðsluskilti í Básum.

    Öll herlegheitin kosta aðeins 1.500 kr. Gestir eru vinsamlegast beðnir að hafa handbært reiðufé því ekki er hægt að taka við greiðslukortum.

    Næstu ferðir

    Fleiri ferðir
  • Everest-
    hópur

    Everesthópur

    Everest hópur Útivistar hefur göngu sína á ný!

    Everest hópur Útivistar fer hærra og lengra með það að markmiði að njóta en ekki að þjóta.

    Everest hópurinn er hópur fyrir göngufólk sem vill fara hærra, lengra og takast á við krefjandi aðstæður. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi reynslu af göngum á „hærri“ fjöll þar sem flestar ferðirnar eru miðaðar við þriggja og fjögurra skóa ferðir.  

    Hópurinn ætlar, á árinu 2021, að fara samanlagt jafn marga hæðarmetra og tvö af hæstu fjöllum tveggja heimsálfa, Elbrus í Evrópu og Kilimanjaro í Afríku. Samanlögð hæð þeirra fjalla er um 11.600 metrar.

    Farið verður í dagsferðir síðasta laugardag flesta mánuði ársins og einnig verða farnar helgarferðir í sumar og haust. Einhverjar ferðir eru farnar með öðrum hópum innan félagsins.

    Þátttökugjald er 49.000 kr. Reynt verður eftir fremsta megni að sameinast í bíla en þegar það er ekki hægt er farið saman í rútu og er greitt sérstaklega fyrir þær ferðir. Í helgarferðum bætist einnig  gistikostnaður við.

    Ávallt eru minnst tveir reyndir fararstjórar í hverri ferð.

    Fjöldi þátttakenda eru 30.

    Næstu ferðir

    Fleiri ferðir
  • Fjall-
    farar

    Fjallfarar

    Fjallfarar Útivistar er samhentur hópur sem gengur saman 20 skipulagðar göngur frá ágúst fram í júní ár hvert.  Að jafnaði er ein kvöldganga í mánuði og ein dagsferð með undantekningum þó en dagskránni lýkur með helgarferð . Í kvöldgöngum og einstaka dagsferðum sameinast hópurinn í bíla en í öðrum ferðum verður ferðast í rútu.  Allajafna er brottför í kvöldgöngur kl. 18:00 á miðvikudegi og helgarferð kl. 8:00 á laugardegi.

    Fjallfarar henta þeim sem þegar hafa tekið sín fyrstu skref í fjallgöngum og útivist og vilja ferðast drjúgar dagleiðir og krefjandi kvöldgöngur í góðra vina hópi.  Byrjendum og skemur komnum bendum við á Útivistarlífið Rík áhersla er lögð á liðsheild og félagsanda meðal Fjallfara.

    Fararstjórar Fjallfara eru Björgólfur Thorsteinsson, Guðrún Svava Viðarsdóttir, Jóhanna Fríða Dalkvist og Guðmundur Örn Sverrisson.

    Næstu ferðir

    25. júní 2021 - 27. júní 2021

    Skálagisting í lokaferð Fjallfara

    Fleiri ferðir
  • Jeppa-
    ferðir

    Jeppaferðir

    Í jeppaferðum koma þátttakendur á eigin jeppum. Ferðast er í hóp undir leiðsögn fararstjóra sem hefur góða reynslu af þessari tegund ferðamennsku. Bæði er um að ræða vetrarferðir þar sem gerðar eru tilteknar kröfur um búnað jeppanna, svo og sumar- og haustferðir sem henta lítið breyttum eða óbreyttum jeppum. 

    Næstu ferðir

    13. mars 2021 - 14. mars 2021

    Setrið - Leppistungur

    27. mars 2021 - 28. mars 2021

    Fjallabak syðra

    10. apríl 2021 - 11. apríl 2021

    Eyjafjallajökull - Fimmvörðuháls - Mýrdalsjökull

    Fleiri ferðir
  • Útivistar-
    lífið

    Útivistarlífið

    Útivistarlífið er ný, spennandi og fjölbreytt þriggja mánaða dagskrá fyrir byrjendur og lengra komna í útivist.  Þátttakendum gefst kostur á að prufa ýmsar greinar útivistar og erfiðleikastig miðast við byrjendur, 1-2 skór, léttar og miðlungs erfiðar ferðir sem flestir geta tekið þátt hafi þeir réttan útbúnað og líkamlega getu til þess.

    Fjölbreytni ferða og samheldni hópsins verður í fyrirrúmi í Útivistarlífinu sem er kjörin dagskrá fyrir fólk sem vill njóta náttúrunnar í góðum hópi og prufa eitthvað nýtt í bland við klassískar Útivistarferðir.

    Dagskrá Útivistarlífsins hefst í aftur í ágúst 2020.  

    Fararstjórar Útivistarlífsins eru Auður Jóhannsdóttir, Hanna Guðmundsdóttir, Kristjana Kristjánsdóttir, Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir, Snorri Guðjónsson, Steinunn S. Ólafardóttir, Þórlaug Sveinsdóttir og Guðmundur Örn Sverrisson.  

    Næstu ferðir

    Fleiri ferðir
  • Þrekhópur
    Útivistar

    Þrekhópur Útivistar

    Þrekhópur Útivistar  fer nú aftur í gang 1. september n.k. og er nú opið fyrir skráningu. Skráning fer fram hér á vefnum en einnig er hægt að hafa samband við skrifstofu Útivistar

    Þrekhópur Útivistar er nýr dagskrárliður Ferðafélagsins Útivistar sem hentar þeim sem vilja koma sér í eða vilja halda sér í fjallgönguformi.  Með þátttöku í Þrekhópi Útivistar geta þátttakendur tekið þátt í þrekæfingum á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 18. Einnig eru þrekæfingarnar brotnar upp og farið í styttri ferðir á sömu dögum ca. tvisvar í mánuði fyrir fast, lágt mánaðargjald.  

    Fararstjórateymi Þrekhóps Útivistar samanstendur af sjúkraþjálfurum, yogakennurum og reyndum fararstjórum sem stýra ferðum með markvissum en ekki síst líflegum hætti.  Eins og í öðru hópastarfi Útivistar er rík áhersla lögð á samheldni, öryggi og gleði.

    Smelltu hér til að skrá þig í Þrekhóp Útivistar.

    Næstu ferðir

    Fleiri ferðir


English

Útivist's hiking tours in 2021:

Fimmvörðuháls 
The Solstice Hike over Fimmvörðuháls
Laugavegurinn 
Strútsstígur 
Sveinstindur-Skælingar  

Huts

Álftavötn
Básar
Dalakofinn
Fimmvörðuháls
Skælingar
Strútur
Sveinstindur 

Photos

 

About Útivist



English

  • Fimmvörðuháls
  • Laugavegurinn
  • Strútsstígur
  • Sveinstindur-Skælingar
  • About Útivist
  • Other hiking tours
  • Álftavötn hut
  • Básar hut
  • Dalakofinn hut
  • Fimmvörðuháls hut
  • Skælingar hut
  • Strútur hut
  • Sveinstindur hut
  • The Solstice Hike over Fimmvörðuháls
  • Useful links

Þú ert hér

  • Heim/
  • English

Útivist

  • Ferðafélagið Útivist
  • Borgartúni 3
  • 105 Reykjavík
  • Sími: 562 1000
  • utivist@utivist.is
  • Opið alla virka daga kl. 12-17

Póstlistinn

Skráðu þig og fáðu vikuleg fréttabréf um það sem er á döfinni hjá félaginu.

Leita

Ferðaáætlun

Ferðaáætlun Útivistar 2021 er komin út. Kynningarblað liggur frammi á skrifstofu Útivistar en ferðir í áætluninni er hægt að skoða með lýsingum hér á vefnum. Jafnframt er hægt að sækja pdf útgáfu af blaðinu eða fletta því rafrænt.

Fylgstu með okkur

  • Við erum á Facebook
  • RSS straumur
Þessi vefur keyrir á WebMaster vefumsjónarkerfi