Að heiman og heim - 8. leggur

Dags:

lau. 7. jún. 2025

Brottför:

Hist á bílaplani Southcoast Adventure

Þessi viðburður er liðinn.

Að heiman og heim – afmælisraðganga

Áttundi leggur:  Frá Breiðabólstaðarkirkju að afleggjara við Southcoast Adventure

Áttundi áfangi raðgöngunnar frá Reykjavík í Bása. Nú er gengið frá Breiðabólstaðarkirkju að afleggjara við Southcoast Adventure

Við hittumst kl. 10:00 og leggjum bílunum á bílaplani við Southcoast Adventure
Gangan verður um 20 km
Muna að taka með sér vaðskó!

Hjarta Útivistar slær í Básum á Goðalandi í Þórsmörk.  Útivist byggði fyrsta skála sinn þar um 1980 og hafa félagar átt þar ófáar gleðistundir við leiki og störf.  Árið 1990 var farin raðganga frá Reykjavík í Bása sem enn er í minnum höfð. Og nú á 50 ára afmæli Útivistar ætlum við að endurtaka leikinn. Áfangarnir eru tíu. Við hefjum leik í janúar og síðasta gangan endar í Básum á afmælishátíð félagsins 21. júní. Fyrirkomulagið verður þannig að farið verður á eigin bílum og safnast saman við endastöð göngunnar. Sameinast í bíla og ekið að upphafsstað. Verði er haldið í algjöru lágmarki og vonum við að sem flestir gangi með okkur að hluta eða alla leið. Leiðarlýsing og áfangar miðast við aðstæður og geta breyst.

18.janúar

Skrifstofa Útivistar í Rauðhóla ca 12 km

15.feb

Rauðhólar í Litlu kaffistofu

15.mars

Litla kaffistofa í Hveragerði

12.apríl

Hveragerði - Selfoss

26.apríl

Selfoss - Þjórsárbrú

10.maí

Þjórsárbrú - Hella

24.maí

Hella - Hvolsvöllur

7.júní

Hvolsvöllur - gamla Markarfljótsbrúin

14.júní

Markarfjlót - Gígjökull

21.júní

Gígjökull - Básar

Verð 7.000 kr.
Félagsverð 4.500 kr.

Nr.

2506D01
  • Suðurland