Dags:
fös. 26. jún. 2026 - sun. 28. jún. 2026
Jónsmessan er tíminn til að hefja útivistarsumarið, koma saman, fara í skemmtilagar göngur og gista á fallegum stað. Fyrir okkur í Útivist er enginn staður sem hentar betur en svæðið okkar fallega í Básum á Goðalandi. Þar hefur Útivist efnt til gönguferða og fagnaðar um Jónsmessu árum saman og það er engin breyting á því nú.
Á föstudagskvöldi koma þátttakendur sér á eigin bílum í Bása.
Gist er í skála í tvær nætur.
Á laugardeginum boðið upp á dagsgöngur í Básum við allra hæfi, bæði stutta og fjölskylduvæna, sem og lengri ferð.
Á laugardagskvöldinu tekur svo margrómuð Útivistargleðin völdin þegar allir hittast, slegið er upp afmælisgrillveislu og varðeldi.
Innifalið er rúta, skálagisting, fararstjórn og grillveislan.
Verð 37.000 kr.
Félagsverð 26.000 kr.