Dags:
fim. 3. sep. 2026 - sun. 6. sep. 2026
Brottför:
Strútsskáli og nágrenni hans með fararstjórum Fjallabralls
Á síðustu dögum sumarsins bjóða fararstjórar Fjallabralls, Fríða, Hanna og Tryggvi, til langrar helgarferðar í Strútsskála. Skálinn stendur undir Torfajökli í stórbrotnu umhverfi.
Lagt verður af stað frá Reykjavík kl. 17:00 og keyrt sem leið liggur í Strútsskála þar sem við komum seint í hús og komum okkur í koju. Á föstudeginum og laugardeginum verður svo gengið í nágrenni Strútsskála og farið í styttri göngu á sunnudeginum áður en keyrt verður aftur í bæinn. Val á gönguleiðum fer eftir veðri og vindum en nóg er í boði og þær leiðir sem koma til greina eru meðal annars ganga á Strút og um Strútsgil, í Strútslaug og Hólmsárbotna, á Mælifell, að Torfajökli og fleira.
Fjallabrall hefur fest sig í sessi sem gríðarlega vinsæll gönguhópur innan Útivistar síðan hann fór í gang á haustdögum 2022. Hópurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa einhverja reynslu af útivist og fjallgöngum. Í ferðunum er aðal áherslan á að öllum líði vel. Allir eiga að geta notið sín í hópnum og mikið er lagt upp úr því að njóta útiverunnar saman.
Fararstjórar eru Fríða Brá Pálsdóttir, Hanna Guðmundsdóttir og Tryggvi Guðmundsson.
Brottför er frá Mjódd.
Innifalið í verði er fararstjórn, rútuferðir, skálagisting í þrjár nætur, heit sturta. Grillveisla í Strútsskála á laugardagskvöldi er einnig innifalin þar sem þátttakendur hjálpast að með matinn.
Verð 89.000 kr.
Félagsverð 76.000 kr.