Fjallabrall - með helgarferð

Dags:

lau. 24. jan. 2026 - sun. 14. jún. 2026

Brottför:

Fjallabrall Útivistar – með helgarferð í Bása

Fjallabrall hefur fest sig í sessi sem gríðarlega vinsæll gönguhópur innan Útivistar síðan hann fór í gang á haustdögum 2022.

Hópurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa einhverja reynslu af útivist og fjallgöngum. Erfiðleikastig ferða er 1-2 skór. Miðað er við að dagsferðir séu ekki meira en um 15 km og uppsöfnuð hækkun í ferðum ekki meiri en um 600 metrar.*

Á vorönninni mun hópurinn ganga níu sinnum saman en farnar verða fjórar kvöldferðir og fimm dagsferðir. Miðað er við að fólk fari á eigin bílum í ferðir (nema í Síldarmannagötur þar sem farið verður í rútu). Í kvöldgöngunum hittist hópurinn kl. 18 og í dagsgöngunum hittist hópurinn ýmist kl.8 eða kl. 9, í báðum tilvikum er boðið að sameinast í bíla og svo keyrir hópurinn í samfloti að upphafstað göngu.

Í ferðunum er aðal áherslan á að öllum líði vel. Allir eiga að geta notið sín í hópnum og mikið er lagt upp úr því að njóta útiverunnar saman. Þátttakendur fræðast um ýmsa hluti tengda göngum og útivist auk þess sem lagt er upp úr því að deila fróðleik tengdum svæðinu sem ferðast er um.

Helgarferð vorannar er í Bása í Þórsmörk. Lagt verður af stað með rútu frá Reykjavík seinnipartinn á föstudeginum og keyrt í Bása þar sem birkiilmurinn og fjallakyrrðin tekur á móti okkur. Föstudagskvöldið fer í að koma okkur fyrir í skála og undirbúa göngu laugardagsins. Á laugardagsmorgninum verður svo lagt af stað í göngu en val á henni fer eftir veðri og vindum. Á laugardagskvöldinu skellum við svo í sameiginlegt grill og gaman og njótum samverunnar. Á sunnudeginum gefst svo tækifæri til að fara í stutta og þægilega gönguferð um fallegt svæði í nágrenni Bása áður en rútan keyrir hópinn aftur til Reykjavíkur eftir hádegi.

Innifalið í skráningu er fararstjórn í allar ferðir, rúta í helgarferð í Básum og í dagsferðina á Síldarmannagötur og tveggja nátta gisting í skála í helgarferðinni í Básum.

24. janúar

Prestastígur

dagsferð

11. febrúar

Rauðavatn og Paradísardalur

kvöldferð

7. mars

Húsfell og Helgadalur

dagsferð

25. mars

Grótta og sund**

kvöldferð

11. apríl

Litli og Stóri Reyðarbarmur

dagsferð

22. apríl

Reykjaborg

kvöldferð

9. maí

Suðurfjall og Bollafell við Brynjudal

dagsferð

20. maí

Hér og þar á Henglinum

kvöldferð

30. maí

Síldarmannagötur - opin ferð**

dagsferð

12.-14. júní

Helgarferð í Bása

helgarferð

 

* Sundferð í sundlaug  Seltjarnarnes eftir Gróttu er ekki innifalin og greiðist aukalega af þátttakendum.

**Ferðin er innifalin í verði fyrir þátttakendur en í opnar ferðir geta aðrir en þátttakendur í Fjallabralli skráð sig í gegnum skrifstofu Útivistar. Vinir og vandamenn hópsins hafa nýtt tækifærið og gengið með í þessum ferðum.

Athugið að dagskrá getur tekið breytingum með hliðsjón af veðurspám og aðstæðum að hverju sinni.

Fararstjórar eru Fríða Brá Pálsdóttir, Hanna Guðmundsdóttir og Tryggvi Guðmundsson.

Verð 90.000 kr.
Félagsverð 76.000 kr.

Nr.

2601B01H