Skilmálar

Skilmálar

Útivist áskilur sér rétt til að hætta við, fresta ferð eða breyta áætlun vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi aðstæðna, svo og ef ekki er næg þátttaka í ferð.

Útivist tryggir hvorki farþega né farangur þeirra. Farþegar ferðast með félaginu á eigin ábyrgð.  Farþegar eru hvattir til að vera með ferða-, forfalla- og slysatryggingar. Athugið að þessar tryggingar eru hluti af sumum fjölskyldutryggingum en rétt er að kynna sér það hjá viðeigandi tryggingafélagi.

Afturköllun eða breytingar á pöntun Hægt er að afturkalla fimm vikum fyrir brottför eða fyrr, án kostnaðar, sé það gert innan viku frá pöntun. Sé pöntun afturkölluð með minna en 28 daga en meira en 14 daga fyrirvara heldur Útivist eftir 25% af verði ferðarinnar en þó aldrei lægri upphæð en sem nemur staðfestingargjaldi. Berist afpöntun með skemmri en 14 daga en meira en 7 daga fyrirvara á Útivist kröfu á 50% fargjaldsins. Berist afpöntun með skemmri en 7 daga en meira en 4 daga fyrirvara heldur Útivist eftir 75% af verði ferðarinnar en sé fyrirvarinn aðeins 3 virkir dagar eða skemmri er allt fargjaldið óafturkræft. Ef þátttakandi mætir ekki til brottfarar á réttum tíma á hann ekki rétt á endurgreiðslu ferðarinnar. Staðfestingargjaldið er óendurkræft. Ef helmingur ferðar er greiddur með krítarkorti þá gilda sömu reglur varðandi forföll og við kaup á ferðum til útlanda. Athugið þó að skilmálarnir fara eftir því um hvaða kort er að ræða og því er ferðamönnum bent á að kynna sér þá skilmála sem gilda fyrir kortin.

Vakin er athygli á að mörg stéttarfélög veita félagsmönnum sínum styrki til líkamsræktar. Margir nýta þessa styrki til að ferðast með Útivist.  Því hvetjum við félagsmenn okkar til að kanna hvað þeim stendur til boða hjá sínu stéttarfélagi.  Leynist þar kannski möguleiki til enn frekari þátttöku í ferðum Útivistar.