Vorferð jeppadeildar á Vatnajökul - vestari hópur

Dags:

fim. 23. apr. 2026 - sun. 26. apr. 2026

Brottför:

kl. 08:30 frá Olís við Rauðavatn.

  • Skáli

Vorferð jeppadeildar á Vatnajökul - vestari hópur

Í hinni stórskemmtilegu vorferð Útivistar verður boðið upp á tvo hópa, annar sem fer austurleiðina um Skálafellsjökul og hinn sem fer um Grímsfjall. Í Sigurðarskála gista hóparnir saman og halda grillveislu að hætti Útivistar á föstudagskvöldið.

Vestari hópurinn leggur af stað frá Olís við Rauðavatn á fimmtudagsmorgni og verður ekið á Grímsfjall þar sem gist verður. Á föstudeginum verður farið yfir Vatnajökul og stefnan tekin á Sigurðarskála í Kverkfjöllum þar sem gist verður í tvær nætur og hóparnir sameinast á föstudeginum. Á laugardeginum verður farið sem leið liggur í Hveragil í bað. Á sunnudeginum verður ekið til byggða annað hvort yfir Vatnajökul eða sem leið liggur vestur fyrir jökulinn.
Fararstjóri: Sveinn Sigurður Kjartansson.

Við skráningu þegar ökumaður skráir sig þarf eftirfarandi að koma fram í athugasemdum:
Bílnúmer
Gerð bíls
Litur bíls
Dekkjastærð
Áætlaður fjöldi í bíl, ökumaður talinn með. ATH! Það þarf alltaf að bóka farþega til að taka frá plássið.

Við skráningu farþega þarf eftirfarandi að koma fram í athugasemdum:
Að viðkomandi sé farþegi
Bílnúmer

Verð 60.000 kr.
Félagsverð 49.000 kr.

Nr.

2604J02B