Helgarferð í Bása í Þórsmörk með fararstjórum Fjallabralls

Dags:

fös. 12. jún. 2026 - sun. 14. jún. 2026

Brottför:

Kl. 17:00 frá Mjódd

  • Skáli

Helgina 12.–14. júní ætla fararstjórar Fjallabralls og systkinin Hanna og Tryggvi að halda inn í Bása á Goðalandi og vilja endilega fá ykkur með í sumarævintýri í einni af perlum íslenskrar náttúru.

Í júní eru Básar að vakna til lífsins. Birkið er farið að laufgast, gróðurinn tekur við sér og þessi einstaka kyrrð og fegurð sem einkennir Goðalandið tekur á móti gestum. Það er engin tilviljun að margir segja að hjarta Ferðafélagsins Útivistar slái í Básum.

Lagt verður af stað með rútu frá Reykjavík seinnipartinn á föstudeginum og keyrt í Bása þar sem birki ilmurinn og fjallakyrrðin tekur á móti okkur. Föstudagskvöldið fer í að koma okkur fyrir í skála og undirbúa göngu laugardagsins. Á laugardagsmorgninum verður svo lagt af stað í göngu en val á henni fer eftir veðri og vindum enda úr nægu að moða á þessu stórbrotna svæði. Laugardagskvöldið verður svo helgað samveru, grillgleði og notalegri stemningu í einum fallegasta skálastað landsins. Á sunnudeginum gefst tækifæri til að fara í stutta og þægilega göngu um nágrenni Bása áður en haldið verður aftur til Reykjavíkur eftir hádegi. Reiknað er með að við verðum komin aftur í bæinn um kvöldmatarleytið.

Undanfarin ár hefur verið unnið mikið og glæsilegt starf við að endurnýja og bæta aðstöðuna í Básum og skálarnir tekið miklum breytingum til hins betra því er þetta frábær tími til að koma og upplifa svæðið.

Í öllum ferðum með fararstjórum Fjallabralls er aðal áherslan á að þátttakendum líði vel og á það ekki síður við í helgarferðunum okkar. Allir eiga að geta notið sín og mikið er lagt upp úr því að njóta útiverunnar saman. Ferðin er opin öllum og því kjörið tækifæri til að koma með og njóta dásemdarinnar með okkur í Básum en Básar á Goðalandi eiga sérstakan stað í hjarta allra Útivistarfélaga og er oft talað um að hjarta Ferðafélagsins Útivistar slái í Básum á Goðalandi.

Innifalið: Fararstjórn, rúta fram og til baka, heit sturta og tvær skálagistingar

Fararstjórar eru Hanna Guðmundsdóttir og Tryggvi Guðmundsson.

Verð 47.000 kr.
Félagsverð 37.000 kr.

Nr.

2606H04