Fjallfarar - vorönn 2023

Dags:

lau. 14. jan. 2023 - mið. 24. maí 2023

Brottför:

Þessi viðburður er liðinn.

Göngmenn.jpg

Fjallfarar Útivistar er hópur sem gengur saman eina dagsgöngu og eina kvöldgöngu í mánuði. Hópurinn er fyrir fólk sem hefur reynslu af gönguferðum og vill ganga dagleiðir sem eru í meðallagi langar og með nokkurri hækkun. Dagskráin yfir árið er tvískipt og verður einn hópur frá janúar til maí og annar frá september fram í desember. Gönguleiðirnar eru fjölbreyttar að lengd og á hinum ýmsu svæðum.

Dagsgöngurnar eru að jafnaði annan laugardag í mánuði og miðvikudagsganga mánaðarins 11 dögum síðar. Ef veðurútlit er óheppilegt á laugardeginum verður gangan færð yfir á sunnudag sömu helgi. Farið er á eigin bílum í flestar göngurnar en í einstaka ferðir er farið með rútu. Í kvöldgöngunum er gengið af stað kl. 18 og þarf þá að vera búið að keyra að upphafsstað göngunnar. Þegar farið er í dagsgöngurnar er hist á fyrirfram ákveðnum stað á milli kl. 8:00 og 9:00 og svo keyrt í samfloti að göngubyrjun.

Göngur Fjallfara eru frá miðlungs erfiðum upp í erfiðar göngur (2-3 skór). Mikilvægt er að hafa viðeigandi útbúnað og fatnað og hafa reynslu af því að nota hann. Þátttakendur fá útbúnaðarlista og nánari upplýsingar um hverja göngu í sérstökum facebook hópi Fjallfara eða með tölvupósti fyrir þá sem þess óska.

Athugið, hægt er að skrá sig í dagskránna með eða án helgarferðar og er skráning í gegnum þessa síðu með helgarferð innifalinni. Ef þú vilt skrá þig í dagskrá Fjallfara án helgarferðar kostar það 30.500 kr og er bókunarsíða fyrir það hér.

Dagskrá vorönn 2023:

Áskilinn er réttur að breyta dagskrá meðal annars vegna veðurs eða annarra aðstæðna.

14.jan  Dagsferð  Vindáshlíð - Fossá í Kjós - Kirkjustígur að 
 Reynivallakirkju
25.jan  Kvöldferð  Húsadalur - Reykjaborg - Borgardalur
11.feb  Dagsferð  Búrfell í Þingvallasveit
22.feb  Kvöldferð  Eyrarfjall
11.mar  Dagsferð  Ármannsfell
22.mar  Kvöldferð  Geitahlíð og Stóra-Eldborg
1.apr  Dagsferð  Svínaskarð - Móskarðahnúkar 
12.apr  Kvöldferð  Þingvellir
13.maí  Dagsferð  Bjarnarhafnarfjall
19. - 21. maí  Helgarferð  Básar með Fjallabralli
24.maí  Kvöldferð  Helgafell í Hafnarfirði - yfir eða í gegnum "gatið"
Verð 38.500 kr.

Nr.

2300P01