Dags:
mið. 10. feb. 2027 - sun. 13. jún. 2027
Brottför:
Hefur þig alltaf langað að prófa bakpokaferðir, en veist ekki hvar á að byrja? Eða er einfaldlega bara of langt síðan síðast og þú vilt rifja þetta upp.
Námskeiðið „Með allt á bakinu – byrjendanámskeið í bakpokaferðum“ er þá fyrir þig!
Hvort sem þú ert að byrja í því að ganga með allan búnað á bakinu eða hefur ekki gert það í langan tíma og vilt rifja það upp, þá færðu á þessu námskeiði þá þekkingu og reynslu sem þarf til að takast á við lengri ferðir á eigin vegum.
Námskeiðið fer yfir grunnatriði bakpokaferðalaga með skemmtilegum fyrirlestrum, umræðum og skoðun á búnaði, og prufun á búnaði. Þar sem þú lærir allt frá því að velja réttan bakpoka og pakka snjallt, til að tjalda, elda úti og velja leiðir í náttúrunni. Þú færð tækifæri til að prófa búnaðinn þinn í öruggu og skipulögðu umhverfi í dagsferðum og ferðum yfir nótt og undirbúa þig fyrir lengri ferðir, allt undir leiðsögn reynslubolta
Fararstjórar eru Hrönn Baldursdóttir og Íris Hrund Halldórsdóttir
Kennt er tvisvar í mánuði, annaðhvort á skrifstofu Útivistar Katrínartúni 4 eða farið í ferðir.
| 10. febrúar 2027 |
Miðvikudagur |
19:30–21:00 |
Útilegubúnaður og pökkun |
Skrifstofa Útivistar |
| 24. febrúar 2027 |
Miðvikudagur |
19:30–21:00 |
Matur og eldun |
Skrifstofa Útivistar |
| 6. mars 2027 |
Laugardagur |
09:00–16:00 |
Verklegt - Dagsferð |
Leið ákveðin síðar: Um 5–10 km ganga |
| 10. mars 2027 |
Miðvikudagur |
19:30–21:00 |
Val á tjaldstæði og tjaldstæðamenning |
Skrifstofa Útivistar |
| 10. apríl 2027 |
Laugardagur |
09:00–16:00 |
Verklegt - Dagsferð |
Leið ákveðin síðar: Um 5-10 km ganga |
| 14. apríl 2027 |
Miðvikudagur |
19:30–21:00 |
Útbúnaður í poka og nánar um pökkun |
Skrifstofa Útivistar |
| 6. - 7. maí 2027 |
Fimmtudagur (Uppstigningadagur) til Föstudagsmorgun |
19:00 - 08:00 |
Verklegt -Tjaldað yfir nótt |
Leið ákveðin síðar: Um 2-5 km ganga |
| 21. - 22. maí 2027 |
Föstudagur til laugardags |
18:00 - 18:00 |
Verklegt - Tjaldað yfir nótt |
Leið ákveðin síðar: Um 8 - 12km ganga |
| 11. til 13. júní |
Föstudagur til sunnudags |
18:00 - 14:00 |
Verklegt: Helgarferð með allt á bakinu |
Leið ákveðin síðar: Um 14 - 16 km ganga |
Verð 92.000 kr.
Félagsverð 72.000 kr.