Dags:
mið. 30. des. 2026 - lau. 2. jan. 2027
Brottför:
frá Mjódd kl. 9:00
Það er fátt sérstakara en að kveðja gamla árið og fagna nýju í fögrum fjallasal umkringdum stórbrotinni náttúru, jöklum og eldfjöllum. Áramót í Básum eru ógleymanleg upplifun með gönguferðum, góðum mat, blysför, áramótabrennu, flugeldum og fleiru skemmtilegu. Allt í góðum félagsskap manna, álfa og trölla eins og vera ber um áramót.
Innifalið í verði er fararstjórn, rútuferðir og skálagisting. Einnig er innifalinn kvöldmatur og morgunmatur alla daga en þátttakendur taka með sér hádegismat. drykki og nasl.
Athugið að það er frítt fyrir börn 6 ára og yngri og 50% afsláttur fyrir börn 7-17ára.
Verð 76.000 kr.
Félagsverð 65.000 kr.