Góðar göngur, frábær félagsskapur og fullt af (fjalla)bralli!
Fjallabrall hefur fest sig í sessi sem gríðarlega vinsæll gönguhópur innan Útivistar síðan hann fór í gang á haustdögum 2022. Á vorönn 2027 fer hópurinn af stað í tíunda sinn og heldur áfram að bjóða upp á fjölbreyttar gönguferðir þar sem útivist, náttúruupplifun og góður félagsskapur fara saman.
Fjallabrall er ætlað öllum sem hafa einhverja reynslu af útivist og fjallgöngum og vilja njóta fjölbreyttra gönguferða í góðum félagsskap. Erfiðleikastig ferðanna er 1–2 skór. Miðað er við að dagsferðir séu að hámarki um 15–16 km og uppsöfnuð hækkun ekki meiri en um 600 metrar. Í göngunum gefum við okkur tíma til að njóta umhverfisins, spjalla og fræðast. Fararstjórar miðla fróðleik um svæðin sem gengið er um og ýmislegt sem tengist útivist og fjallgöngum.
Frá upphafi höfum við fararstjórar lagt mikla áherslu á að öllum líði vel, að hver og einn fái að njóta sín og að fólk kynnist og myndi tengsl innan hópsins. Með tímanum hefur skapast einstaklega skemmtilegur og samhentur hópur þar sem þátttakendurnir sjálfir eiga stóran þátt í því góða andrúmslofti sem einkennir Fjallabrall. Það sem okkur þykir sérstaklega vænt um er hversu vel nýjum þátttakendum er tekið. Hvort sem fólk er að mæta í sína fyrstu göngu eða hefur verið með okkur frá upphafi er það strax hluti af hópnum. Í Fjallabralli eru allir velkomnir og við leggjum okkur fram um að enginn upplifi sig utangátta. Fjallabrall er vettvangur þar sem fólk getur notið útiverunnar, upplifað nýja staði, eignast göngufélaga og átt góðar stundir saman í náttúrunni.
Á vorönninni göngum við tíu sinnum saman, fimm kvöldferðir og fimm dagsferðir. Miðað er við að þátttakendur fari á eigin bílum í ferðirnar, að undanskilinni dagsferð á Sveifluháls þar sem farið verður með rútu. Í kvöldgöngum hittist hópurinn kl. 18:00 og í dagsgöngum milli kl. 8:00 og 9:00. Á sameiginlegum mætingarstað gefst þátttakendum kostur á að sameinast í bíla og þaðan er ekið í samfloti að upphafsstað göngunnar.
Við leggjum mikla áherslu á vandaðan undirbúning allra ferða. Fararstjórar fylgjast vel með veðurspám og aðstæðum og fara í undirbúningsferðir til að kanna gönguleiðir og meta aðstæður áður en lagt er af stað.
Nokkrum dögum fyrir hverja ferð fá þátttakendur nánari upplýsingar um gönguna, meðal annars um gönguleiðina, vegalengd, hækkun, áætlaðan göngutíma, mætingarstað og nauðsynlegan búnað. Dagskrá og leiðarval geta tekið breytingum með hliðsjón af veðri og aðstæðum hverju sinni.
Við skráningu fá þátttakendur aðgang að lokuðum Facebook-hópi Fjallabralls. Þar birtum við upplýsingar um komandi ferðir, deilum myndum og fróðleik og höldum áfram góðum samskiptum milli gönguferða. Það er þó alls engin nauðsyn að vera á Facebook til að taka þátt í Fjallabralli. Allar upplýsingar um ferðirnar eru einnig sendar þátttakendum með tölvupósti svo allir fái sömu upplýsingar og geti fylgst vel með.
Innifalið er fararstjórn í allar tíu göngurnar, undirbúningur og upplýsingagjöf fyrir hverja ferð ásamt rútuferð í dagsferðina á Sveifluháls.
Fararstjórar: Fríða Brá Pálsdóttir, Hanna Guðmundsdóttir og Tryggvi Guðmundsson.
Við hlökkum til að taka á móti bæði nýjum og kunnuglegum andlitum í Fjallabralli á vorönn 2027. Það er alltaf pláss fyrir fleiri góða göngufélaga!
|
30. janúar
|
Krýsuvíkurgata
|
dagsferð
|
|
|
17. febrúar
|
Kópavogshringur og sund *
|
kvöldferð
|
|
|
3. mars
|
Kýrskarð og Kúadalir
|
kvöldferð
|
|
|
20. mars
|
Stórhöfðastígur
|
dagsferð
|
|
|
31. mars
|
Selfjall og Sandfell
|
kvöldferð
|
|
|
14. apríl
|
Helgafell í Hafnafjörður
|
kvöldferð
|
|
|
1. maí
|
Alpaferð í Mosfellssveit (Helgafell, Reykjafell og Æsustaðafell)
|
dagsferð
|
|
|
12. maí
|
Hér og þar á henglinum
|
kvöldferð
|
|
|
29. maí
|
Sveifluhálsinn endilangur (opin ferð) **
|
dagsferð
|
|
|
12. júní
|
Dalaleið - fyrrihluti
|
dagsferð
|
|
* Sundferð í Kópavogslaug eftir göngu í Kópavogi er ekki innifalin og greiðist aukalega af þátttakendum.
** Ferðin er innifalin í verði fyrir þátttakendur en í opnar ferðir geta aðrir en þátttakendur í Fjallabralli skráð sig í gegnum skrifstofu Útivistar. Vinir og vandamenn hópsins hafa nýtt tækifærið og gengið með í þessum ferðum.
Athugið að dagskrá getur tekið breytingum með hliðsjón af veðurspám og aðstæðum að hverju sinni.