Dags:
lau. 4. sep. 2027
Brottför:
Eigin bílar, hist á bílastæði við rætur fjallsins andspænis Borgarnesi kl 9:00
Hafnarfjall er bæjarfjall Borgnesinga líkt og Esjan er bæjarfjall höfuðborgarbúa. Á Hafnarfjall eru margar gönguleiðir þó svo að flestir kjósi að ganga eftir hryggnum sem liggur samsíða þjóðveginum. Nú verður farin sérlega spennandi leið upp Klausturtunguhól og um þrönga geil í hamrabeltinu. Síðan verða tindar fjallsins þræddir í vesturátt á hæsta tindinn, Gildalshnúk og svo niður hrygginn norðan við að upphafstað aftur.
Vegalengd 9 km. Hækkun 1000 m. Göngutími 5-6 klst.
Verð 9.900 kr.
Félagsverð 6.900 kr.