Dags:
fös. 12. feb. 2027 - fim. 14. jan. 2027
Brottför:
Frjáls ferðadagur, en fararstjórar munu skipuleggja jeppaferðir og fylgd.
Nú verður blásið til þorrablótsveislu Jeppadeildar Útivistar í Básum á Goðalandi. Hvergi er betra að blóta Þorra en á Goðalandi og í nýuppgerðum skála Útivistar þar sem aðstæður gerast ekki betri. Markmiðið er að allir séu velkomnir, óháð dekkjastærð, jafnvel þótt færðin verði þung fyrir minni bíla myndum við stefna að því að koma öllum inn í Bása, hvort heldur væri í spotta eða með skutli ef þarf. Lágmarksdekkjastærð verður þó 35” en fer eftir aðstæðum hverju sinni. Jeppadeildin mun gefa út yfirlýsingu um færð og dekkjastærð þegar nær dregur. Stjórnin fer með kost og búnað í Bása á föstudegi, undirbýr herlegheitin, metur aðgengi og gerir viðeigandi ráðstafanir eftir þörfum. Laugardagurinn er frjáls ferðadagur og getur fólk myndað hópa sín á milli ef það vill t.a.m. fara upp á Eyjafjallajökul, yfir Markarfljót, inn í Emstrur, Mælifellssand o.s.frv. Þorrablótið hefst svo formlega kl. 18:00 á laugardeginum og verður blótað í anda Snorra goða og Gríms góðsyngjandi, þess er orti Gleymnisrímur forðum. Sunnudagur er svo frjáls heimferðardagur. Innifalið í verði er gisting, matur, drykkir, fararstjórn og ógleymanleg skemmtun.
Fararstjórar: Egill Rúnar Hjartarson, Gylfi Jónu Arnbjarnarson, Skúli Skúlason, Sveinn Sigurður Kjartansson, Þorsteinn Pálsson, Þórarinn Eyfjörð.