Dags:
þri. 13. júl. 2027 - fim. 15. júl. 2027
Brottför:
Kl. 10 frá Mjódd
Bækistöðvaferðir 60+ félaga hafa notið mikilla vinsælda undanfarin ár og við sláum ekki slöku við sumarið 2027!
Stundum er talað um að hjarta Ferðafélagsins Útivistar slái í Básum á Goðalandi (Þórsmörk), en þar eiga jafnt yngri sem eldri Útivistarfélagar margar sælar minningar. Þessi ferð er tilvalin fyrir eldri félaga sem vilja endurupplifa góðar minningar, sem og nýja félaga á virðulegum aldri sem langar að kynnast þessari paradís undir leiðsögn kunnugra.
Lagt verður af stað frá Mjódd kl. 10:00 á þriðjudegi og ekið í Bása. Eftir að hafa komið sér fyrir í skála er farið í létta göngu í nágrenni skálans, genginn Básahringur með viðkomu í Fjósafuð.
Daginn eftir verður boðið uppá göngur við allra hæfi. Hvert haldið verður kemur í ljós síðar. Farið verður í 5-6 klst. göngu. Einnig verður farin léttari ganga í nágrenni Bása fyrir þá sem það vilja. Þeir sem ekki fara í gönguferð geta haldið kyrru fyrir í Básum og notið kyrrðarinnar.
Varðeldur með söng á fimmtudagskvöldinu.
Heimfarardag verður stoppað á leiðinni og tekin um tveggja tíma gönguferð á einhverjum af þeim náttúruperlum sem þar eru.
Fararstjórar eru Jóhanna Benedikstsóttir, Guðbjartur Guðbjartsson og Ásta Óladóttir
Innifalið: Leiðsögn, akstur, heit sturta og tvær skálagistingar auk sameiginlegra kvöldmáltíða bæði kvöldin.
Brottför: 13. júlí kl. 10.00 frá Mjódd/bíó megin.
Heimkoma: 15. júlí á milli kl. 17.00 og 18.00.
Verð 82.000 kr.
Félagsverð 68.000 kr.