Við blásum til vinnuferðar í Bása helgina 15.-17. maí. Margir telja Bása einn fallegasta stað landsins og það er gefandi vinna að gera þessa paradís enn betri. Þegar margar hendur leggjast á eitt við að bæta, byggja, snyrta og laga verður útkoman þannig að allir Útivistarfélagar fyllast stolti.
Verkefnin eru mörg og margbreytileg og því skorum við á alla sem eiga kost á að koma í Bása þessa helgi og leggja sitt af mörkum. Á laugardagskvöldið verður svo að sjálfsögðu sönn Básagleði og ekki ólíklegt að gripið verði í gítar og söng.
Farið er af stað síðdegis föstudagskvöld og til baka á sunnudag.
Að venju verður matur og ferðakostnaður á reikning félagsins.
Áhugasamir sendi póst sem fyrst á hordur@utivist.is