Frestum ferðum vegna samkomutakmarkana

05. október 2020

Frétt uppfærð 30. október: Öllu frestað vegna hertra samkomutakmarkana til og með 17. nóvember.

Frétt frá 27. október: Gönguþrek er hafið á ný og dagsferðir hefjast um næstu helgi. Vel er hugað að sóttvörnum.

Frétt frá 19. október: Ljóst er að samkomutakmarkanir verða með svipuðu sniði áfram. Við frestum þess vegna flestum okkar ferðum til 3. nóvember. Þó er verið að athuga með möguleika á dagsferðum á þessu tímabili.

Frétt frá 5. október: Vegna þeirra samkomutakmarkana sem í gildi eru þurfum við að fresta ferðum sem eru á dagskrá á tímabilinu 5.-19. október og ekki er hægt að framkvæma í samræmi við gildandi reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Við munum taka stöðuna þegar fyrir liggur hvaða reglur gilda að þessu tímabili loknu.