Umhverfisþing

31. október 2018

XI. Umhverfisþing verður haldið föstudaginn 9. nóvember 2018 á Grand Hóteli í Reykjavík. Að þessu sinni verður grunnstef þingsins ný hugsun í náttúruvernd og þau tækifæri sem geta falist í friðlýsingum svæða.


Á þinginu verður áhersla lögð á nýja nálgun í náttúruverndarmálum. Meðal annars verður kynnt ný rannsókn á efnahagslegum áhrifum friðlýstra svæða, rædd verða tengsl náttúruverndar og byggðaþróunar og áform um stofnun þjóðgarðs á miðhálendi Íslands skoðuð frá ólíkum sjónarhornum. Þinginu lýkur svo með pallborðsumræðum um sama efni.

Þrír gestir sem koma erlendis frá ávarpa þingið. Nigel Dudley, ráðgjafi fyrir Alþjóðlegu náttúruverndarsamtökin IUCN, útskýrir hvað felst í verndarflokkum samtakanna sem notaðir eru sem viðmið um verndun svæða um allan heim. Lizzie Watts, frá Þjóðgarðastofnun Bandaríkjanna, fjallar um samstarf hins opinbera og einkaaðila á vernduðum svæðum. Loks ræðir Chris Burkard, útivistarljósmyndari og fyrirlesari, um upplifun sína af miðhálendi Íslands í máli og myndum.

Skráning er á vef umhverfisráðuneytisins