Óskað eftir tilnefningum til verðlauna á Degi íslenskrar náttúru

21. ágúst 2018

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent verða á Degi íslenskrar náttúru. Annars vegar er um að ræða Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlindaráðuneytisins og hins vegar Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti. Tilnefningarfrestur er til 24. ágúst næstkomandi.

Nánari upplýsingar er að finna á vef ráðuneytisins.