Dags:
lau. 15. mar. 2014 - sun. 16. mar. 2014
Þessi viðburður er liðinn.
Þann 20. mars eru fjögur ár liðin síðan gosið á Fimmvörðuhálsi hófst. Á köldum degi rýkur enn úr gígunum Magna og Móða og hin magnaða umgjörð á Hálsinum gerir ferð þangað enn magnaðri.
Farið frá Reykjavík að morgni laugardags og ekið um Mýrdalsjökul á Fimmvörðuháls. Gist verður í hinum trausta skála Útivistar. Heimferð sömu leið en ef aðstæður eru góðar og menn og konur í stuði verða hugsanlega fundin einhver tilbrigði við leiðarval. Fararstjórar eru Tryggvi V. Traustason og Jón Viðar Guðjónsson.
Verð 12.000 kr.
Verð 10.000 kr.