Aðventuferð í Bása

Dags:

fös. 19. nóv. 2027 - sun. 21. nóv. 2027

Brottför:

Brottför: frá Mjódd kl. 16:30

  • Skáli

Aðventuferðirnar eru alltaf frábær skemmtun bæði fyrir börn og fullorðna. Vetrarríkið í Básum skartar sínu fegursta og einhverjum sögum fer af því að jólasveinum bregði fyrir í fjöllunum og jafnvel fleiri meðlimum þeirrar fjölskyldu. Þegar skyggja tekur verður sest að jólahlaðborði og blásið til kvöldvöku.

Innifalið í verði er fararstjórn, rútuferðir og skálagisting.

Athugið að það er frítt fyrir börn 6 ára og yngri og 50% afsláttur fyrir börn 7-17ára.

Verð 67.000 kr.
Félagsverð 56.000 kr.

Nr.

2711H01