Útivist styrkir björgunarsveit

26. mars 2013

Björgunarsveitin Stjarnan í Skaftártungu hefur síðastliðið ár verið að byggja nýtt hús undir starfsemi sína. Til að fjármagna kaup á varmadælu í nýja húsið leitaði sveitin til þeirra ferðaþjónustufyrirtækja sem mest eru á fjallabaki á sumrin en það eru Útivist, Íslenskir Fjallaleiðsögumenn, Ferðakompaníið, Fjallabak, Ferðafélag Íslands og Kynnisferðir.  Fyrirtækin tóku vel í þá beiðni að styrkja sveitina á þennan hátt og fjármögnuðu kaupin í sameiningu.

Mánudaginn  25. mars var varmadælan formlega afhent Björgunarsveitinni Stjörnunni í húsnæði Landsbjargar við Skógarhlíð.

Nánari upplýsingar veitir Gísli í síma 8948273.