Dags:
þri. 16. júl. 2024 - fim. 18. júl. 2024
Brottför:
frá Mjódd kl. 10:00
Þessi viðburður er liðinn.
Eftir velheppnaða þriggja daga bækistöðvaferð í Bása síðast liðin tvö sumur verður leikurinn endurtekinn.
Stundum er talað um að hjarta Ferðafélagsins Útivistar slái í Básum á Goðalandi, en þar eiga jafnt yngri sem eldri Útivistarfélagar góðar minningar. Þessi ferð er tilvalin fyrir eldri félaga sem vilja endurupplifa stemninguna í Básum, sem og nýja félaga á virðulegum aldri sem langar að kynnast þessari paradís undir leiðsögn kunnugra.
Lagt verður af stað frá Mjódd kl. 10:00 á þriðjudegi og ekið í Bása. Eftir að hafa komið sér fyrir í skála er farið í tveggja tíma göngu í nágrenni skálans.
Daginn eftir verður boðið uppá göngur við allra hæfi. Hvert ferðinni verður heitið kemur í ljós síðar. Farið verður í um það bil fjögurra til fimm tíma göngu. Einnig verður farin léttari ganga í nágrenni Bása fyrir þá sem það vilja. Þeir sem ekki hafa áhuga á gönguferð geta haldið kyrru fyrir í Básum og notið kyrrðarinnar.
Varðeldur með sögn og dans um kvöldið.
Heimfarardag verður stoppað á leiðinni frá Básum og tekin um tveggja tíma gönguferð á einhverjum af þeim náttúruperlum sem þar eru.
Innifalið: Leiðsögn, akstur, heit sturta og tvær skálagistingar auk sameiginlegra kvöldmáltíða bæði kvöldin.
Brottför 16. júlí kl. 10.00 frá Mjódd
Heimkoma 18. júlí á milli kl. 17.00 og 18.00
Fararstjórar eru Guðrún Frímannsdóttir, Jóhanna Benediktsdóttir og Guðbjartur Guðbjartsson