Dags:
lau. 27. maí 2023
Brottför:
kl. 08:00 frá Mjódd.
Þessi viðburður er liðinn.
Þórisjökull er móbergsstapi með jökulhettu. Gengið verður af Kaldadal vestan á stapann. Í fyrstu verður farið upp bratta hlíð en síðan taka við skriður og jökulurðir inn að jöklinum. Jökulgangan er á fótinn en efst er jökulbunga og ekki gott að finna hæsta punkt. Útsýni er gríðarmikið til allra átta. Af jöklagöngu að vera er ganga á Þórisjökul tiltölulega þægileg. Vegalengd 18-20 km. Göngutími 7-8 klst.
Innifalið í verði fararstjórn og rúta.