Dags:
fös. 25. nóv. 2022 - sun. 27. nóv. 2022
Brottför:
Kl. 18:00 frá Mjódd
Aðventuferðirnar í Bása eru alltaf frábær skemmtun bæði fyrir börn og fullorðna. Vetrarríkið skartar sínu fegursta og einhverjum sögum fer af því að jólasveinum bregði fyrir í fjöllunum og jafnvel fleiri meðlimum þeirrar fjölskyldu. Þegar skyggja tekur verður sest að jólahlaðborði og blásið til kvöldvöku. Tilvalið að taka börnin með í þessa ferð. Börn undir 18 ára aldri fá 50% afslátt.