Útivistargírinn haust 2023

Dags:

þri. 29. ágú. 2023 - þri. 3. okt. 2023

Tími:

Hefur þig alltaf langað til að geta gengið á fjöll og/eða taka þátt í lengri göngum en ekki látið verða af því? Þá er Útivistargírinn fyrir þig! Fjölmargir hafa tekið sín fyrstu skref í útivist og fjallgöngum með Útivistargírnum þar sem saman koma nýliðar og reynsluboltar í útivistinni.

Dagskrá Útivistargírsins haustið 2023 hefst 29. ágúst og stendur til 3. október. Göngurnar henta flestum sem geta hreyft sig með góðu móti sem og nýliðum í útivist og hvetjum við einnig þá sem vanari eru göngum að taka þátt nema annað sé tekið fram. Í kvöldgöngum er farið yfir grunnatriði í útivist og gönguferðum og fjölbreytt starfsemi Útivistar kynnt þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Gönguleiðirnar eru fjölbreyttar og er tekið mið af veðri og færð hverju sinni.

Göngurnar taka 2–4 klukkustundir og koma þátttakendur sér á staðinn á einkabílum.

Þátttaka í göngunum er félagsmönnum Útivistar að kostnaðarlausu en æskilegt er að skrá þátttöku í hverja göngu fyrir sig í viðburði á Facebook. Kynntu þér Útivistargírinn á utivist.is, þar má finna dagskrá ásamt upplýsingum um skráningu.

Gerast félagsmaður

Þegar þið eruð búin að gerast félagsmenn er nóg að sækja um aðgang í Facebook hóp Útivistargírsins;
https://www.facebook.com/groups/1155197585167994 

Dagskrá haust 2023:

Dags.   Göngur
29.ágú   Reynisvatn og nágrenni
5.sep   Ganga við Elliðavatn 
12.sep   Bæjarfell og Arnarfell*
19.sep   Mosfellsdalur - Leirvogur
26.sep   Rauðhólar
3.okt   Fossvogsdalur 
   
              *Ath sameinast í bíla kl. 17:30

ATH.: Gönguleiðir geta breyst eða færst til ef veðurspáin er ekki hagstæð. 

Nr.