Sveinstindur - Skælingar

Dags:

sun. 6. ágú. 2023 - mið. 9. ágú. 2023

Brottför:

kl. 8:00 frá Mjódd.

  • Skáli

Beljandi jökulá, viðkvæmar mosabreiður, eldfjallajarðvegur og stórbrotnar hraunmyndanir eru það sem einkenna þessa sérstöku gönguleið.

Gangan hefst við eitt fegursta fjallavatn landsins, Langasjó. Þar er gengið á Sveinstind, en í góðu skyggni er þar útsýni yfir sunnanvert hálendið og um breiður Vatnajökuls.

Gist í Sveinstindsskála sunnan við fjallið. Þaðan er haldið niður með Skaftá í Skælinga þar sem einstakar hraunmyndanir setja svip á umhverfið. Frá Skælingum er gengið á Gjátind og niður í Eldgjá.

Gangan endar í Hólaskjóli þar sem gist er síðustu nóttina.

Innifalið í verði er fararstjórn, rútuferðir, flutningur á farangri milli skála og allar skálagistingar.

Verð 81.000 kr.

Nr.

2308L02