Dags:
fös. 14. júl. 2023 - mán. 17. júl. 2023
Siglt verður frá Ísafirði í Hornvík þar sem settar verða upp tjaldbúðir og gengið út frá þeim. Farið verður um Hornbjarg og Hornbjargsviti í Látravík heimsóttur.
Gengið verður um einstigi í Hvannadal. Þá verður farið um Rekavík bak Höfn og Atlaskarð í Hælavík á æskuslóðir Jakobínu Sigurðardóttur og Þórleifs Bjarnasonar og e.t.v. lesið úr minningabókum þeirra. Bátur sækir farangur en hópurinn gengur um Hafnarskarð í Veiðileysufjörð og hittir á bátinn þar.
Innifalið í verði er fararstjórn og siglingar.