Tindfjöll - Foss – Rjúpnavelli

Dags:

fim. 6. júl. 2023 - sun. 9. júl. 2023

Brottför:

kl. 8:00 frá Mjódd.

  • Skáli

Hér er á ferðinni spennandi nýjung þar sem gengið er um ótroðnar slóðir. Gengið er um Tindfjöll og ofanverða Rangárvelli, suður fyrir Heklu og að Rjúpnavöllum.

Á fyrsta degi er ekið á eigin bílum inn Fljótshlíð að Fljótsdal þaðan sem gengið er í Tindfjallasel þar sem gist verður fyrstu nóttina. Eftir að hópurinn hefur komið sér fyrir í skálanum verður dagurinn nýttur til að skoða umhverfið. Frá Tindfjallaskála verður gengið í vestur og stefnan tekin á bæinn Foss við Eystri-Rangá.

Leiðin liggur sunnan megin við Vörðufell og stefnt á Litla Bláfell. Síðan er farið um Fremra-Kálfatungugil, niður Góðadal, Stigagil og Markagil og komið að eyðibýlinu Rauðnefsstöðum, en það fór í eyði eftir Heklugosið 1947. Farið á vaði yfir Eystri Rangá að eyðibýlinu Fossi þar sem er gist í uppgerðu bæjarhúsinu. Vegalengd 18,5 km.

Á þriðja degi göngunnar er gengið frá Fossi á Rjúpnavelli. Þetta er nokkuð löng dagleið en hækkun er óveruleg. Gengið er um Skógarhraun, Herjólfsheiði og Dagverðarnesheiði hjá Pálssteinshrauni. Þá verður stefnan tekin á Suðurhraun sunnan megin við Fálkahamar og stefnt í norður meðfram Hálsfjalli. Gengið verður yfir Norðurhraun á milli Bjólfells og Tindgilsfells fram hjá Selvatni og ofan Næfurholts. Farið yfir Ytri-Rangá og gljúfrin við brúna skoðuð. Þaðan liggur leiðin upp með ánni að Rjúpnavöllum. Að loknum löngum göngudegi verður slakað á í vistlegum skála á Rjúpnavöllum. Vegalengd 28 km. Daginn eftir er hópurinn sóttur og honum ekið í Fljótsdal þar sem bílar voru skildir eftir.

Innifalið í verði er fararstjórn, rútuferðir, flutningur á farangri milli skála og allar skálagisting.

Fararstjóri er Steinar Sólveigarson

Verð 74.000 kr.

Nr.

2307L03