Dags:
fim. 29. jún. 2023 - mán. 3. júl. 2023
Brottför:
kl. 8:00 frá Mjódd.
Hér er klassísk Laugavegsferð þar sem leiðin er gengin í fjórum þægilegum áföngum. Ekið í Landmannalaugar að morgni dags og samdægurs gengið sem leið liggur í Hrafntinnusker þar sem gist er fyrstu nóttina.
Úr Hrafntinnuskeri er haldið suður eftir sléttum vestan Reykjafjalla og um Jökultungur í Hvanngil. Úr Hvanngili er gengið um slétta sanda, með Mýrdalsjökul á vinstri hönd, í Emstrur þar sem gist er í Botnaskála.
Frá Emstrum liggur leiðin yfir Syðri-Emstruá á göngubrú í fallegu gili og áfram sem leið liggur um Almenninga í Þórsmörk. Í Básum á Goðalandi bíður göngumanna grillveisla í einstöku umhverfi, en þar er gist í notalegum skála. Seinasta daginn er farið í stutta göngu um nágrenni Bása áður en haldið er heim.
Innifalið í verði er fararstjórn, rútuferðir, flutningur á farangri milli skála, allar skálagisting og grillveisla á laugardagskvöldið.
Fararstjóri er Hrönn Baldursdóttir
Ferðalýsing og gátlisti