Dags:
lau. 17. júl. 2021 - mið. 21. júl. 2021
Þessi Laugavegsferð er ætluð allri fjölskyldunni og sniðin að þörfum barna. Hér er því upplagt tækifæri til að kynna börnunum fyrir dásemdum útivistar. Ekið í Landmannalaugar að morgni dags og samdægurs gengið sem leið liggur í Hrafntinnusker þar sem gist er fyrstu nóttina. Frá Hrafntinnuskeri er haldið suður eftir sléttum vestan Reykjafjalla og um Jökultungur í Hvanngil. Úr Hvanngili er gengið um slétta sanda, með Mýrdalsjökul á vinstri hönd, í Emstrur þar sem gist er í Botnaskála. Frá Emstrum liggur leiðin yfir Syðri-Emstruá á göngubrú í fallegu gili og áfram sem leið liggur um Almenninga í Þórsmörk. Í Básum á Goðalandi bíður göngumanna grillveisla í einstöku umhverfi, en þar er gist í notalegum skála. Á sunnudegi er farið í stutta göngu um nágrenni Bása áður en haldið er heim.
Ath.: Börn 17 ára og yngri fá 50% afslátt af þátttökugjaldi.
Nánari ferðalýsing.