Fjallabak syðra, Dalakofi – Strútur

Dags:

fös. 22. sep. 2023 - sun. 24. sep. 2023

Brottför:

kl. 18:00 frá Olís við Hellu.

  • Skáli
Þessi viðburður er liðinn.

Þessi ferð er fyrir óbreytta eða lítið breytta jeppa. Farið er inn á Fjallabak um Keldur og inn fyrir Hafrafell meðfram Eystri Rangá upp í Dalakofa þar sem gist verður í skála Útivistar. Á laugardeginum er ferðinni heitið um Syðra Fjallabak, eftir stutt stopp við nafnlausa fossinn í Markarfljótinu. Komið verður við í Álftavatni og Hvanngili og kíkt á gljúfrin þar sem Kaldaklofskvísl fellur í Markarfljótið á leið okkar í Strút, þar sem gist verður í skála Útivistar. Á sunnudeginum verður ekið austur fyrir Mælifell og farið yfir Brennivínskvísl og Hólmsá og í Álftavatnakrók.

Fararstjóri: Gylfi Arnbjörnsson.

  • Fundur með þátttakendum verður haldinn í aðdraganda ferðar þar sem m.a. er farið yfir búnað bíla, almennan búnað, umgengni í skálum o.fl. Fundartími auglýstur síðar.
  • Nauðsynlegt er að vera með VHF rás Útivistar í öllum bílum.
  • Allir forráðamenn bíla verða að vera félagsmenn í Útivist.
  • Innifalið í verði er fararstjórn og skálagistingar.

 

Verð 18.000 kr.

Nr.

2309J01
  • Miðhálendi