Dags:
fim. 20. apr. 2023 - sun. 23. apr. 2023
Brottför:
kl. 08:30 frá Smyrlabjörgum.
ATH! Uppselt er í ferðina.
Hin stórskemmtilega árlega vorferð um Vatnajökul er ein vinsælasta ferð jeppadeildarinnar. Ferðinni er nú heitið á austurjökulinn. Ferðin hefst að morgni fimmtudags frá Smyrlabjörgum en gisting nóttina áður er á ábyrgð hvers og eins. Ekið verður á Goðabungu og ef veður og tími vinna með okkur verður ekið um öræfin austur af Vatnajökli með viðkomu í Egilsseli og Tröllakrókum. Kannaðar verða leiðirnar á Þrándarjökul og Hofsjökul eystri. Farið verður niður Hraun, yfir Eyjabakkastífluna og um Snæfellsfjallgarðinn í Snæfellsskála, þar sem verður gist. Á föstudeginum verður dagurinn tekin snemma og ekið í Kverkfjöll þar sem farið verður í bað í Hveragili. Á laugardeginum verður svo ferðinni haldið áfram á Grímsfjall og ástund lögð á gufubað og grill og verður gist þar. Sunnudagurinn verður notaður til heimferðar frá Grímsfjalli, hefðbundna leið um Jökulheima í Hrauneyjar þar sem ferðinni lýkur.
Farastjóri: Þórarinn Eyfjörð.
- Fundur með þátttakendum verður haldinn í aðdraganda ferðar þar sem m.a. er farið yfir búnað bíla, almennan búnað, umgengni í skálum o.fl. Fundartími auglýstur síðar.
- Nauðsynlegt er að vera með VHF rás Útivistar í öllum bílum.
- Allir forráðamenn bíla verða að vera félagsmenn í Útivist.
- Innifalið í verði er fararstjórn og skálagistingar. Ath að gisting nóttina fyrir upphaf ferðar er ekki innifalin.