Fjallabrall Útivistar – án helgarferðar

Dags:

mið. 27. ágú. 2025 - mið. 3. des. 2025

Brottför:

Fjallabrall hefur fest sig í sessi sem gríðarlega vinsæll gönguhópur innan Útivistar síðan hann fór í gang á haustdögum 2022.

Hópurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa einhverja reynslu af útivist og fjallgöngum. Erfiðleikastig ferða er 1-2 skór. Miðað er við að dagsferðir séu almennt ekki meira en um 15 km og uppsöfnuð hækkun í ferðum ekki meiri en um 600 metrar.

Á haustönninni mun hópurinn ganga átta sinnum saman en farnar verða fjórar kvöldferðir og fjórar dagsferðir. Miðað er við að fólk fari á eigin bílum í ferðirnar (nema þegar gengið verður á Skjaldbreiður og Kattartjarnarleiðina þá verður rúta sem keyrir hópinn á upphafstað göngu og sækir hópinn í lok hennar). Í kvöldgöngunum hittist hópurinn kl. 18 og í dagsgöngunum hittist hópurinn ýmist kl. 8 eða kl. 9, þar sem boðið verður að sameinast í bíla og svo keyrir hópurinn í samfloti að upphafstað göngu.

Í ferðunum er aðal áherslan á að öllum líði vel. Allir eiga að geta notið sín í hópnum og mikið er gert úr því að hópurinn njóti útiverunnar saman. Þátttakendur fræðast um ýmislegt tengt göngum og útivist auk þess sem lagt er upp úr því að deila fróðleik tengdum svæðinu sem ferðast er um.

Innifalið í skráningu er fararstjórn í allar ferðir og rúta í dagsferðir á Skjaldbreiður og í Kattartjarnaleiðina.

Fararstjórar eru Fríða Brá Pálsdóttir, Hanna Guðmundsdóttir og Tryggvi Guðmundsson.

Hér og þar á Henglinum I

kvöldferð

27.ágúst

Skjaldbreiður - opin ferð**

dagsferð

6.sept

Stóri Meitill

kvöldferð

17.sept

Þyrill og Hvammsvík*

dagsferð

27.sept

Kattartjarnaleið - opin ferð**

dagsferð

11.okt

Elliðaárdalur og sund í Árbæjarlaug*

kvöldferð

29.okt

Ingólfsfjall

dagsferð

15.nóv

Aðventuóvissuferð

kvöldferð

3.des

 *Ferð í Hvammsvík eftir Þyril og sundferð í Árbæjarlaug eftir Elliðaárdal er ekki innifalið og greiðist aukalega af þátttakendum.

**Í opnar ferðir geta aðrir en þátttakendur í Fjallabralli skráð sig í gegnum skrifstofu Útivistar. Vinir og vandamenn hópsins hafa nýtt tækifærið og gengið með í þessum ferðum.

Athugið að dagskrá getur tekið breytingum með hliðsjón af veðurspám og aðstæðum að hverju sinni.

Verð 56.000 kr.
Félagsverð 42.000 kr.

Nr.

2508B01