Grill og gaman í Básum

Dags:

fös. 16. sep. 2022 - sun. 18. sep. 2022

Brottför:

Kl. 18:00 frá Mjódd

  • Skáli
Þessi viðburður er liðinn.

Að loknu góðu ferðasumri liggja leiðir okkar í Bása til að taka á móti haustinu. Á þeim tíma er einstakt að heimsækja Goðaland því þá gleðja haustlitirnir augað hvert sem litið er. Gönguferðir og holl útivist er einkenni ferðarinnar og því verður farið í góða göngu um Goðaland. Gönguleið verður valin eftir veðri og aðstæðum. Á laugardagskvöldi verður grillveisla og varðeldur að hætti Útivistar.

Verð 36.000 kr.

Nr.

2209H01