Dags:
mið. 14. ágú. 2024 - lau. 30. nóv. 2024
Brottför:
Uppselt er í hóp Fjallabralls, til að fara á biðlista er hægt að senda póst á utivist@utivist.is
Fjallabrall hefur fest sig í sessi sem gríðarlega vinsæll gönguhópur innan Útivistar síðan hann fór í gang á haustdögum 2022.
Hópurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa einhverja reynslu af útivist og fjallgöngum. Erfiðleikastig ferða er 1-2 skór og miðað er við að dagsferðir séu ekki meira en um 15 km og hækkun í ferðum ekki meiri en um 600 metrar. Gengið er 2 sinnum í mánuði að meðaltali, ein kvöldferð og ein dagsferð.
Miðað er við að fólk fari á eigin bílum í ferðir. Í kvöldgöngunum hittist hópurinn kl. 18 en í dagsgöngunum hittist hópurinn ýmist kl. 8 eða kl. 9, sameinast í bíla og svo keyrir hópurinn í samfloti að upphafstað göngu.
Í ferðunum er aðal áherslan á að öllum líði vel. Allir eiga að geta notið sín í hópnum og mikið er lagt upp úr því að njóta útiverunnar saman. Þátttakendur fræðast um ýmsa hluti tengda göngum og útivist auk þess sem lagt er upp úr því að deila fróðleik tengdum svæðinu sem ferðast er um.
kvöldferð
|
14. ágúst
|
Sandsfjall
|
kvöldferð
|
28. ágúst
|
Stóra Kóngsfell og Eldborg
|
dagsferð
|
15. sept
|
Dagsferð á Hengillinn
|
kvöldferð
|
25. sept
|
Hádegisfjall og Írafell
|
dagsferð
|
12. okt
|
Miðfell og Dagmálafell
|
kvöldferð
|
23. október
|
Vogastapi
|
dagsferð
|
2. nóv
|
Skálafell á Hellisheiði
|
kvöldferð
|
13. nóv
|
Kjalarnestá
|
dagsferð
|
30. nóvember
|
Aðventuóvissuferð
|
Innifalið í skráningu er fararstjórn í allar ferðir.
Fararstjórar eru Fríða Brá Pálsdóttir og Hanna Guðmundsdóttir.
Athugið að dagskrá getur tekið breytingum með hliðsjón af veðurspám og aðstæðum að hverju sinni.