Fjallabrall haustönn 2023, án helgarferðar

Dags:

mið. 23. ágú. 2023 - mið. 6. des. 2023

Brottför:

Fjallabrall.jpg

Fjallabrall Útivistar fór í gang á haustdögum 2022 en hópurinn fékk gríðarlega góðar móttökur og verður því aftur á dagskrá árið 2023.  Hópurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa einhverja reynslu af útivist og fjallgöngum. Gráðun ferða er 1-2 skór: Miðað við að dagsferðir séu ekki meira en um 15 km og hækkun í ferðum ekki meira en um 500 metrar. Gengið er 2x í mánuði að meðaltali, ein kvöldferð og ein dagsferð.

Í ferðunum er aðal áherslan á að öllum líði vel. Allir eiga að geta notið sín í hópnum og mikið er lagt uppúr því að njóta útiverunnar saman. Þátttakendur fræðast um ýmsa hluti tengda göngum og útivist, auk þess sem lagt er uppúr því að deila fróðleik tengdum svæðinu sem ferðast er um. Fararstjórar eru Fríða Brá Pálsdóttir, Edda Sól Ólafsdóttir og Hanna Guðmundsdóttir.

 

Áskilinn er réttur að breyta dagskrá meðal annars vegna veðurs eða annarra aðstæðna.

Dagskrá haustönn 2023 - án helgarferðar:

23.ágú   Kvöldferð Lakahnúkur og Tjarnahnúkur
26.ágú   Dagsferð Þjórsárdalur
                      20.sep  Kvöldferð Þyrilsnes
7.okt   Dagsferð
Grænadyngja
18.okt  Kvöldferð
Eldborg og Geitahlíð
28.okt     Dagsferð
Þórðarfell og Rauðhóll
8.nóv   Kvöldferð
Ástjörn og Ásfjall
18.nóv   Dagsferð Skáldaleiðin og Grímannsfell
6.des   Kvöldferð Jólaferð
     
Verð 38.000 kr.

Nr.

2300B02B