Dags:
mið. 23. ágú. 2023 - mið. 6. des. 2023
Brottför:
Fjallabrall Útivistar fór í gang á haustdögum 2022 og fer þriðja dagskrá hópsins í gang haustið 2023. Hópurinn er ætlaður öllum þeim sem hafa einhverja reynslu af útivist og fjallgöngum. Gráðun ferða er 1-2 skór: Miðað við að dagsferðir séu ekki meira en um 15 km og hækkun í ferðum ekki meira en um 500 metrar. Gengið er 2x í mánuði að meðaltali, ein kvöldferð og ein dagsferð.
Í ferðunum er aðal áherslan á að öllum líði vel. Allir eiga að geta notið sín í hópnum og mikið er lagt uppúr því að njóta útiverunnar saman. Þátttakendur fræðast um ýmsa hluti tengda göngum og útivist, auk þess sem lagt er uppúr því að deila fróðleik tengdum svæðinu sem ferðast er um. Fararstjórar eru Fríða Brá Pálsdóttir, Edda Sól Ólafsdóttir og Hanna Guðmundsdóttir.
Dagskrá haustönn 2023:
23.ágú |
Kvöldferð |
Lakahnúkur og Tjarnahnúkur |
26.ágú |
Dagsferð |
Þjórsárdalur |
15.-17. sept |
Helgarferð |
Dalakofi |
20.sep |
Kvöldferð |
Þyrilsnes |
7.okt |
Dagsferð |
Grænadyngja |
18.okt |
Kvöldferð |
Eldborg og Geitahlíð |
28.okt |
Dagsferð |
Þórðarfell og Rauðhóll |
8.nóv |
Kvöldferð |
Ástjörn og Ásfjall |
18.nóv |
Dagsferð |
Skáldaleiðin og Grímannsfell |
6.des |
Kvöldferð |
Jólaferð |