Raðganga um Reykjaveginn, 6. leggur: Bláfjallaskáli–Hellisheiðarvirkjun
Gengið er frá Bláfjallaskála upp á Bláfjallahorn við Suðurgil, þar sem komið er á hæsta hluta Reykjavegarins. Þaðan er haldið niður austan Bláfjalla og Ólafsskarðsvegi fylgt norður að Leiti. Frá Leiti er gengið um Leitahraun að Syðri-Eldborg og síðan áfram að Nyrðri-Eldborg. Þaðan liggur leiðin um skarðið milli Lambafells og Lambafellshnjúks og yfir Þrengslaveg. Að lokum er gengið um Svínahraunsbruna, fram hjá Kolviðarhóli og að Hellisheiðarvirkjun.
Vegalengd er um 20 – 22km og 700m hækkun
Um Raðgönguna um Reykjaveginn 2027:
Raðgöngur Útivistar hafa verið afar vinsælar síðustu ár. Nú stendur Útivist fyrir raðgöngu um hina skemmtilegu leið um Reykjaveginn á fyrri hluta árs 2027. Gangan er í 7 hlutum, fyrsta gangan er 27 febrúar og sú síðasta 5. júní.
Þátttakendur fara ýmist á eigin bílum eða með rútu eftir aðstæðum og hað hentar á hverjum legg. Hægt er að koma í hvern legg fyrir sig en félögum í Úitivist býðst að kaupa alla leggina með ríflega 30% afslætti.
Reykjavegurinn er um 125 km löng stikuð gönguleið frá Reykjanesvita að Nesjavöllum. Hann var stikaður árið 1996 og er gjarnan sagður lengsta merkta gönguleið landsins.
Hugmyndin að Reykjaveginum kom fram árið 1993 þegar Ari Trausti Guðmundsson kynnti hana fyrir Ferðamálanefnd Reykjavíkur. Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins tóku síðan verkefnið að sér og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum komu að undirbúningi og fjármögnun þess, ásamt útivistarfélögum og fleiri aðilum. Árið 1995 var ákveðið að leggja og merkja gönguleiðina og var hún stikuð sumarið 1996. Hugmyndin var að skapa samfellda gönguleið yfir Reykjanesskagann, með skálum eða gistimöguleikum á völdum stöðum.
Leiðin liggur þvert yfir Reykjanesskagann, frá sjávarsíðunni yst á Reykjanesi, um Grindavík, hraunin og hálsana á miðjum skaganum, yfir Bláfjöll og Hellisheiði og að Hengilssvæðinu og Nesjavöllum. Á leiðinni má sjá fjölbreytt landslag sem hefur að mestu mótast af eldvirkni: gígaraðir, hraun, sprungur, misgengi og jarðhitasvæði, en einnig gróðursæla dali og vötn. Víða er jafnframt gengið eftir gömlum þjóðleiðum, svo sem Prestastíg, Hrauntungustíg, Undirhlíðavegi og Selvogsgötu. Reykjavegurinn er því ekki aðeins löng gönguleið heldur líka eins konar þverskurður í gegnum jarðfræði, náttúru og samgöngusögu Reykjanesskagans.
Byrjun leiðarinnar hefur breyst vegna eldsumbrotanna við Grindavík frá árinu 2021. Ný hraun hafa farið yfir hluta hinnar upphaflegu leiðar og því þarf nú að ganga breyttar leiðir á fyrstu leggjunum. Vegalengdir og nákvæmlega leiðarinnar getur því verið mismunandi eftir því hvaða útfærsla er farin.