Raðganga um Reykjaveginn, 3. leggur

Dags:

lau. 3. apr. 2027

Brottför:

Brottför kl. 8:30:  Hist á bílastæði við íþróttahúsið Ásvöllum og rúta tekin þaðan

Raðganga um Reykjaveginn, 3. leggur: Leirdalur - Sogin

Rúta tekin frá Ásvöllum. Gengið er frá bílastæðinu í Leirdal og gömlu Krýsuvíkurgötunni fylgt yfir Grákvíguhraun. Þaðan er farið inn á Reykjaveginn og honum fylgt til norðurs, um hraun og meðfram Núpshlíðarhálsi, um Selsvelli áfram að að bílastæðinu við Sogalæk. Þaðan tekur rútan okkur aftur í bílana.

Vegalengd er um 14 km og 250 m hækkun

Um Raðgönguna um Reykjaveginn 2027:
Raðgöngur Útivistar hafa verið afar vinsælar síðustu ár. Nú stendur Útivist fyrir raðgöngu um hina skemmtilegu leið um Reykjaveginn á fyrri hluta árs 2027. Gangan er í 7 hlutum, fyrsta gangan er 27 febrúar og sú síðasta 5. júní.

Þátttakendur fara ýmist á eigin bílum eða með rútu eftir aðstæðum og hað hentar á hverjum legg. Hægt er að koma í hvern legg fyrir sig en félögum í Úitivist býðst að kaupa alla leggina með ríflega 30% afslætti.

Reykjavegurinn er um 125 km löng stikuð gönguleið frá Reykjanesvita að Nesjavöllum. Hann var stikaður árið 1996 og er gjarnan sagður lengsta merkta gönguleið landsins. 

Hugmyndin að Reykjaveginum kom fram árið 1993 þegar Ari Trausti Guðmundsson kynnti hana fyrir Ferðamálanefnd Reykjavíkur. Ferðamálasamtök höfuðborgarsvæðisins tóku síðan verkefnið að sér og sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum komu að undirbúningi og fjármögnun þess, ásamt útivistarfélögum og fleiri aðilum. Árið 1995 var ákveðið að leggja og merkja gönguleiðina og var hún stikuð sumarið 1996. Hugmyndin var að skapa samfellda gönguleið yfir Reykjanesskagann, með skálum eða gistimöguleikum á völdum stöðum.

Leiðin liggur þvert yfir Reykjanesskagann, frá sjávarsíðunni yst á Reykjanesi, um Grindavík, hraunin og hálsana á miðjum skaganum, yfir Bláfjöll og Hellisheiði og að Hengilssvæðinu og Nesjavöllum. Á leiðinni má sjá fjölbreytt landslag sem hefur að mestu mótast af eldvirkni: gígaraðir, hraun, sprungur, misgengi og jarðhitasvæði, en einnig gróðursæla dali og vötn. Víða er jafnframt gengið eftir gömlum þjóðleiðum, svo sem Prestastíg, Hrauntungustíg, Undirhlíðavegi og Selvogsgötu. Reykjavegurinn er því ekki aðeins löng gönguleið heldur líka eins konar þverskurður í gegnum jarðfræði, náttúru og samgöngusögu Reykjanesskagans.

Byrjun leiðarinnar hefur breyst vegna eldsumbrotanna við Grindavík frá árinu 2021. Ný hraun hafa farið yfir hluta hinnar upphaflegu leiðar og því þarf nú að ganga breyttar leiðir á fyrstu leggjunum. Vegalengdir og nákvæmlega leiðarinnar getur því verið mismunandi eftir því hvaða útfærsla er farin.

Verð 13.900 kr.
Félagsverð 9.900 kr.

Nr.

2704D01