Grasafræði - FELLUR NIÐUR

Dags:

lau. 31. maí 2025

Brottför:

Hittumst við Perluna kl. 11

Þessi viðburður er liðinn.

Vísindapakkinn – Dagsferðir í samstarfi við HÍN

Þann 31. maí verður haldin fræðsluganga í Öskjuhlíð fyrir öll sem hafa áhuga. Í göngunni munum við skoða hinar ýmsu lífverur, meðal annars nokkrar sem hafa farið út í geim, við finnum kjötætuplöntur og ræðum um hvernig hreindýr sjá heiminn öðruvísi en við.

Gangan tekur um 2-3 klst.

Lagt verður af stað frá Perlunni kl 11:00

Gönguna leiða Jóhannes Bjarki Urbancic Tómasson og Ólafur Patrick Ólafsson, líffræðingar. 

Í 50 ára starfi Útivistar hefur gjarnan verið blandað saman góðum gönguferðum og skemmtilegri fræðslu. Í tilefni afmælisins efnir Útivist í samstarfi við Hið íslenska náttúrufræðifélag til skemmtilegra og fræðandi vísindaferða þar sem allir eru velkomnir. Farið er á eigin bílum á valda staði í nágrenni höfuðborgarinnar. Staðsetning er valin eftir aðstæðum og verður auglýst vel. Sérfræðingar frá HÍN verða með í för og fræða þátttakendur um undur náttúrunnar. Sumar ferðirnar eru mjög hentugar sem fjölskylduferðir og við vekjum athygli á að í þessar ferðir verður frítt fyrir börn og unglinga upp að 17 ára aldri.

Í grasafræðiferðinni verður staðsetning valin eftir aðstæðum til að sem mest fáist úr ferðinni. Nánari staðsetning verður auglýst síðar.

Með okkur í för verður Jóhannes Bjarki Urbacic líffræðingur og Ólafur Patrick Ólafsson líffræðingur.

12.april

Jarðfræðiferð

3.maí

Fuglaskoðun

31.maí

Grasafræði

24.ágúst

Sveppaferð

20.sept

Undur fjörunna

Verð 4.500 kr.
Félagsverð 4.500 kr.

Nr.

2505D05
  • Suðvesturland