Dags:
lau. 11. feb. 2023
Brottför:
kl. 09:00 frá Mjódd.
Sameinast í bíla hjá Mjódd og ekið á upphafsstað göngunnar. Gengið er frá Mosfellskirkju eftir stikaðri leið upp fjallið að sérkennilegum kolli sem heitir Diskur. Síðan er haldið áfram upp aflíðandi brekkur uns komið er upp á austurenda fjallsins. Gengið er eftir nær sléttu fjallinu að hæsta punkti þess, en þaðan er ágætt útsýni. Sama leið er farin til baka.
Vegalengd 4 km. Göngutími 2 klst. Hækkun 200 m.
Innifalið í verði er fararstjórn.