Dags:
lau. 9. maí 2020
Brottför:
frá upphafsstað göngu kl. 9.
Þessi viðburður er liðinn.
Ekið á eigin bílum um Bláfjallaveg og lagt á bílastæðinu við skíðasvæðin. Þaðan er gengið á Drottningu og Stóra-Kóngsfell. Útsýni er fagurt og sést vel á Snæfellsnes, Akrafjall, Esju, Botnssúlur, Þórisjökul, Skjaldbreið, Hengil og Vífilsfell svo eitthvað sé nefnt. Göngutími 3 til 4 tímar. Vegalengd 6 til 8 km.
Til að taka þátt í ferðum Útivistar þarf að gerast félagsmaður, en þeir sem ekki eru þegar félagsmenn býðst að greiða félagsgjald kr. 7.800 og fá þá félagsskírteini og fyrstu dagsferðina í kaupbæti. Munið að bóka fyrirfram.